Oddný G. Harðardóttir harmar að ríkisstjórn undir forsæti Vinstri grænna velji frekar að styrkja stríðsrekstur en þróunaraðstoð skv. fjárlögum en Þetta kom fram á síðu hennar. Bandaríkjamenn munu jafnframt leggja til 7 milljarða í hernaðaruppbyggingu á Keflavíkurflugvelli.
,,Hef ekki getað tjáð mig um þetta fyrr en nú. Ég er svo hrygg yfir forgangsröðun ríkisstjórnar sem leidd er af Vinstri grænum.
Getur einhver Vg vina minna útskýrt fyrir mér hvers vegna taka þarf þessa peninga af þróunaraðstoð við fátæk ríki, börn og fullorðna sem búa við sárafátækt og þurfa á okkar þróunaraðstoð að halda?
Höfum við, ein ríkast þjóð í heimi, ekki efni á þróunaraðstoð við fátæk ríki þó að við glímum við efnahagslægð um stund? Hver er neyðin sem knýr okkur til að bítta á aðstoð við fátækt fólk og hernaðaruppbyggingu?“ Segir Oddný G. Harðardóttir.
Þá kemur fram á vef stjórnarráðsins að ríkisstjórnin er komin á fulla ferð með uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli en á vef stjórnarráðsins er kynning á breytingu á deiliskipulagi fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli.
Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Deiliskipulagið er auglýst hér með í samræmi við 1. mgr. 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Deiliskipulagssvæðið er um 760 ha að stærð og afmarkast samkvæmt auglýsingu nr. 720/2015 um landfræðileg mörk öryggis og varnarsvæða. Svæðið liggur að landsvæðum sem eru innan sveitarfélagamarka Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar. Mörk meginsvæðis til austurs og að hluta til suðurs eru að landi innan Reykjanesbæjar, til norðurs að svæði Isavia (svæði A) á Keflavíkurflugvelli og til vesturs og suðurs að landi innan Suðurnesjabæjar.
Deiliskipulagstillagan fjallar m.a. um afmörkun nýrra svæða fyrir starfsemi innan svæðisins s.s. svæði fyrir skammtíma gisti aðstöðu, efnisvinnslusvæði, gistisvæði, geymslusvæði og aðra landnotkun og starfsemi.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á samráðsgátt stjórn valda (samradsgatt.is), heimasíðu utanríkisráðuneytisins og heimasíðu Landhelgisgæslu Íslands frá og með 24. júní 2019.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skila skal skriflegum athuga semdum til: Landhelgisgæslu Íslands, b.t. Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúa, Þjóðbraut 1, 235 Keflavíkurflugvöllur eða í tölvupósti á skipulagsfulltrui@lhg.is. Frestur til að gera athugasemdir rennur út 20. ágúst 2019.
Greinargerð með deiliskipulagi
Skipulagsuppdráttur 1
Skipulagsuppdráttur 2