MATTHÍAS ÞÓRARINSSON – SÍÐAST VITAÐ UM FERÐIR HANS ÞANN 27. OKTÓBER 2010 – Bjarki Hólmgeir Halldórsson tók efnið saman
Matthías Þórarinsson er fæddur 17. maí 1989. Hann var glaðlindur en fámáll og jafnvel lýst sem svolítið sérvitrum. Hann saumaði til dæmis á sig öll föt sjálfur. Hann var listhneigður mjög og málaði myndir auk þess sem hann hafði mikinn áhuga á bílum frá unga aldri. Á unglingsaldri missti hann föður sinn og var það Matthíasi mikið áfall.
Matthías hafðist við í gamalli sendibifreið af gerðinni UAZ eða svokölluðum rússajeppa sem var búið að innrétta sem húsbíl. Á þessum bíl ferðaðist hann líka um þangað sem hann vildi fara. Jafnan dvaldi hann í honum í nágrenni við heimili móður sinnar á Kjalarnesi.
Síðast er vitað um ferðir Matthíasar með öruggum hætti 27. október árið 2010 en um það leiti var hann í samskiptum við móður sína. Síðan þá er ekkert til haldbært um ferðir hans eða gjörðir.
Ábendigar bárust þó um að hann hafi sést á Selfossi um miðjan desember en ekki reyndist unnt að sanna það. Fáar vísbendigar bárust sem hægt var að byggja á eða leita eftir.
Það var svo í janúar 2011 sem bifreið Matthíasar fannst brunnin til kaldra kola í malarnámu á Kjalarnesi. Ljóst var við rannsókn á bílnum að hann hafði ekki verið í bifreiðinni þegar hún brann og ekkert gaf til kynna á staðnum hvað orðið hefði um hann.
Eins kom ekkert í ljós við rannsókn á bílnum sem sagt gat til um eldsupptök en lögreglan taldi að bíllinn hefði brunnið um mánaðarmótin nóvember/desember. Dularfullt þótti þó að húslyklar Matthíasar sem gengu að heimili móður hans fundust skömmu eftir hvarfið í póstkassa við heimili hennar.
Enn hefur ekkert komið fram sem upplýst getur hvað varð um Matthías. Móðir hans heldur enn í þá von að hann muni skila sér heim einn daginn. Matthías Þórarinsson hefur ekki verið úrskurðaður látinn.
Búir þú yfir upplýsingum eða vilt koma á framfæri ábendingu varðandi ofangreint, eða önnur mannshvörf er þér bent á að hafa samband með tölvupósti. Póstfangið er mannshvarf@gmail.com – Bjarki Hólmgeir Halldórsson tók efnið saman

Umræða