Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir niðurstöðu forsætisnefndar og siðanefndar Alþingis vera sneypuför forseta Alþingis í viðtali við Rúv um skýrslu siðanefndar Alþingis.
Sigmundir Davíð sagði m.a. „Staðreyndin er sú að Alþingi setur landsmönnum lög sem er ætlast til að þeir fylgi. Í næsta húsi við þingið eru lög brotin með mjög alvarlegum hætti og mannréttindi um leið.
Þá sjá nokkrir þingmenn tækifæri til þess að nýta það sem tækifæri til að refsa þolendum brotsins og fara af stað í átta mánaða leiðangur og lenda í vandræðum á hverju stigi, þar sem allir sem að málinu komu og hafa aðgang að því frá upphafi, tíu manns, sögðu sig frá því.
Og meira að segja einn í viðbót,“ sagði Sigmundur Davíð í kvöldfréttum RÚV í gær.
Sigmundur Davíð segir í viðtalinu að han telja að hann hafi verið aðalskotmarkið og lítið standi eftir. „En þrátt fyrir átta mánaða tilraunir, þar sem menn fóru meira að segja á svig við lög og grundvallarreglur réttarríkisins, tókst ekki að sýna fram á annað en að það hefði ekkert brot átt sér stað,“ sagði Sigmundur Davíð.
Sigmundur Davíð segir fyrirkomulagið við meðferð mála af þessu tagi vera fráleitt. Hann vonar að menn læri af því. „Ég myndi ekki óska verstu óvinum mínum að ganga í gegnum svoa ferli. Ekki bara þeirra vegna heldur vegna þess að þetta er stórhættulegt fyrir pólitíkina og samfélagið að pólitískir andstæðingar geti rekið mál áfram, jafnvel í andstöðu við lög, til þess að leita að einhverju til að klekkja á andstæðingum sínum,“ sagði Sigmundur Davíð í viðtalinu sem var í beinni útsendingu.
Sigmundur segir að þeir þingmenn á Klaustri sem létu einhver ummæli falla hafi fyrir löngu beðist afsökunar á þeim. „Meira að segja hafa menn beðist afsökunar á einhverju sem þeir sögðu aldrei, en var haldið fram í fjölmiðlum að þeir hefðu sagt.“
Hann segir að við hljótum að virða persónuleg réttindi einstaklinga. „Og láta þessa sneypuför forseta Alþingis og félaga hans okkur að kenningu verða svo að svona hlutir endurtaki sig ekki,“ sagði Sigmundur.
Sigmundur sagði það sorglegt að fulltrúar Alþingis hefðu látið hafa sig út í það að nýta glæp til þess að klekkja á pólitískum andstæðingum. „Og þar af leiðandi er niðurstaðna alltaf ógild,“ sagði Sigmundur. Honum detti ekki í hug að Haraldur Benediktsson og Steinunn Þóra Árnadóttir eigi að stjórna því hverjir séu hæfir til að sitja á Alþingi.

Umræða