Sé þörf á sótthreinsun neysluvatns er ein leið að nota útfjólublátt ljós. Til eru geislunartæki af ýmsum stærðum og gerðum, tæki sem henta stórum veitum sveitafélaga og tæki sem henta litlum einkaveitum. Þá eru litlar líkur á að geisluninni fylgi myndun óæskilegra hliðar- eða niðurbrotsefna, í því magni að það hafi áhrif á heilsu neytenda.
Matvælastofnun hefur tekið saman nokkra punkta varðandi geislun á neysluvatni. Upplýsingarnar ættu að nýtast þeim sem þurfa að sótthreinsa neysluvatn, hvort heldur það eru vatnsveitur sveitarfélaga eða einstaklingar með einkavatnsból eins og sumarhúsaeigendur.
Sé þörf á sótthreinsun neysluvatns er ein leið að nota útfjólublátt ljós. Til eru geislunartæki af ýmsum stærðum og
gerðum, tæki sem henta stórum veitum sveitafélaga og tæki sem henta litlum einkaveitum. Þá eru litlar líkur á að
geisluninni fylgi myndun óæskilegra hliðar-eða niðurbrotsefna, í því magni að hefði áhrif á heilsu neytenda.
Þegar velja á geislunartæki getur Listi Lýðheilsustofnunar Noregs yfir viðurkennd tæki komið að notum
https://www.fhi.no/globalassets/dokumenterfiler/tema/drikkevann/uv40.pdf. Norðmenn miða við að styrkur
geislunarinnar sé ekki undir 40mJ/cm2 (mWs/cm2) svo hún vinni á gróum baktería.
Ætli starfsleyfis- og eftirlitsskyld vatnsveita að sótthreinsa neysluvatn með geislun skal sækja um það leyfi til
heilbrigðiseftirlits svæðisins, en öll meðhöndlun á neysluvatni er háð leyfi heilbrigðisnefndar.
Búnaðinum skal lýst í gæðahandbók og þar skulu koma fram upplýsingar um þætti eins og rekstur, viðhald og
endurnýjun. Skrá skal eftirlit með tækjabúnaði og skulu skráningarnar vera aðgengilegur eftirlitsaðila.
Síun
Nauðsynlegt getur verið að sía vatnið fyrir geislun þar sem uppleyst efni í vatninu og hvers konar agnir draga úr virkni
geislunarinnar. Síunin ver einnig tækjabúnaðinn og lengir þannig líftíma hans.
Síubúnaðinn þarf að hreinsa reglulega og endurnýja.
Peran
Skipta þarf reglulega um peru þar sem styrkur ljóssins dofnar með tímanum. Líftími perunnar er yfirleitt ekki lengri en
ár eða u.þ.b. níuþúsund klukkustundir en að slökkva og kveikja sí og æ styttir líftímann.
Þrífa þarf reglulega hulstrið sem peran er í. Hversu oft ræðst af því hversu hreint vatnið er, hvort það er síað og hvort
í því séu efni sem safnast geta á hulstrið og hindrað þannig geislunina.
Er tækið að virka rétt?
Æskilegt er að á tækinu sé skynjari sem nemur styrk ljóssins og gefur frá sér viðvörun fari styrkurinn undir ákveðin
viðmiðunarmörk.
Til þess að sannreyna að geislunin skili því sem henni er ætlað er nauðsynlegt að taka sýni af vatninu til
örverurannsókna fyrir og eftir geislun. Þetta á ekki síst við þegar geislunin er varúðarráðstöfun s.s. þar sem vatnið er
að jafnaði hreint en við ákveðnar aðstæður hætta á að yfirborðsvatn komist í vatnsbóli. Þá getur búnaðurinn verið
óvirkur í einhvern tíma án þess að það komi niður á gæðum vatnsins.