• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

FA býður fram fulltrúa í rafrettuhóp ráðherra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lög um rafrettur banna sölu þeirra og tengdra vara til barna yngri en 18 ára. Félagsmenn FA hafa framfylgt slíku banni, fyrst að eigin frumkvæði áður en lögin tóku gildi fyrr á árinu. Félag atvinnurekenda hefur sent Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra erindi og boðið fram fulltrúa í starfshóp, sem ráðherra upplýsti um helgina að hún hygðist skipa til að hamla gegn notkun ungmenna á rafrettum og tengdum varningi. Ráðherra upplýsti að í starfshópnum ættu að sitja fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins, embættis landlæknis, Neytendastofu og umboðsmanns barna.

FA rifjar í bréfinu upp að félagið og innflytjendur og seljendur rafrettna, sem eiga aðild að FA, hafa lýst yfir vilja til samstarfs til að tryggja eftirlit og framfylgni laga um rafrettur til að stemma stigu við notkun ungmenna á slíkum vörum. FA vísar um það efni til bréfs FA til ráðuneytisins dags. 2. október sl. og tölvupósts hóps rafrettuverslana til ráðuneytisins 7. október sl. Engin svör hafa borist frá ráðuneytinu við þeim erindum.
Starfsmenn verslana lykilfólk í að framfylgja lögunum
„Að mati félagsins eru seljendur rafrettna mikilvægur aðili í baráttunni gegn notkun ungmenna á rafrettum og því mikilvægt að samráð sé á milli stjórnvalda og söluaðila,“ segir í bréfi FA til ráðherra. „Með fullri virðingu fyrir þekkingu og yfirsýn embættismanna leyfir félagið sér að benda á að starfsfólk rafrettuverslana er lykilfólk í því að framfylgja ákvæðum laganna um bann við sölu til ungmenna og býr jafnframt yfir yfirburðaþekkingu á markaðnum, eftirspurn ungmenna eftir vörunum og tilraunum til að komast framhjá ákvæðum laganna um aldursmörk og öryggisatriði.“
„Að mati FA er nauðsynlegt að í starfshópi ráðherra sé sem breiðust þekking og reynsla, auk þess sem samstarf aðila beggja megin borðs muni auka mjög líkur á að tillögur starfshópsins skili tilætluðum árangri; að stemma stigu við  notkun ungmenna á rafrettum og tengdum vörum. Félag atvinnurekenda ítrekar því boð sitt og félagsmanna um samstarf við ráðuneytið og býður fram fulltrúa í starfshóp ráðherra,“ segir í niðurlagi bréfsins.
Bréf FA til heilbrigðisráðherra
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    75 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Eftirlýst kona handtekin

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?