Stjórnarandstaðan er mjög óánægð með svör forsætisráðherra um ummæli Bjarna Benendiktssonar og viðbrögð ríkisstjórnarinnar vegna Samherjamálsins
Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli á laugardag
,,Í síðustu viku hefur fjármálaráðherra skeytt skapi sínu á okkur þingmönnum stjórnarandstöðunnar og sakað sum okkar um að skaða orðspor Íslands með ummælum um Samherjaskjölin. Á sama tíma liggja fyrir ummæli fjármálaráðherra sjálfs varðandi meintar mútugreiðslur í Namibíu sem hann lét falla í fréttaviðtali, með leyfi forseta:
Meintar mútur fyrst og fremst Namibíumönnum sjálfum að kenna
„Auðvitað er rót vandans í kannski þessu tiltekna máli veikt stjórnkerfi og spillt stjórnkerfi í landinu. Það virðist vera einhvers konar undirrót alls þess sem við erum að sjá flett ofan af.“ Þessi viðhorf hafa eðlilega fangað athygli heimspressunnar og m.a. er fjallað um þau í hinu víðlesna blaði The Guardian sem hefur þetta eftir fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, á vefmiðli sínum.
Ég óska eftir að heyra viðbrögð forsætisráðherra við þeim sjónarmiðum að meintar mútur séu fyrst og fremst Namibíumönnum sjálfum að kenna. Er hún sammála fjármálaráðherra? Hefur forsætisráðherra ekki áhyggjur af því að ráðherra í ríkisstjórn hennar birtist umheiminum með þessi viðhorf?
Endurspeglar þetta viðhorf ríkisstjórnarinnar? Ef forsætisráðherra er ekki sammála fjármálaráðherra, hefur hún ekki áhyggjur af því að einmitt svona ummæli um fátækt þróunarríki sem er að reyna að lyfta sér upp úr örbirgð geti skaðað orðspor Íslendinga stórlega?
Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að vinna gegn þeirri orðsporsáhættu sem þegar hefur skapast? Hver verða pólitísku viðbrögðin og hvaða aðgerðir hyggst forsætisráðherra leggja til? Mun forsætisráðherra nú stíga fram fyrir skjöldu og biðjast afsökunar á þessum ummælum og gera það kristalklárt í augum umheimsins að hér sé ekki um að ræða ummæli sem eru í takt við stefnu Íslendinga eða íslenskra stjórnvalda?“ Sagði Logi Einarsson en fátt var um svör og farið undan í flæmingi.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/18/oll-a-austurvoll-laugardag-23-november-kl-14/