Leitin af drengnum í Núpá er að hefjast að fullum krafti í dag með óþreyttum leitarmönnum og verða um 200 leitarmenn og þriðja tug tækja við leit í dag.
Vöktun var á ánni í nótt og eru engar fréttir eftir nóttina varðandi leitina. Áhersla verður lögð á að leita frá slysstað og niður að Stekkjaflötum með leitarmönnum og síðan verður Þyrlu Landhelgisgæslunnar notið við leit ásamt dróna frá sérsveit ríkislögreglustjóra og björgunarsveitum.
Kafarar frá sérsveit ríkislögreglustjóra, slökkviliðs höfuðborgarsvæðinu og Landhelgisgæslunni hafa ekki náð að kafa í ánni en voru að vinna við sérhæfða leit í gær. Ekki er fyrirhugað að leita með köfurum í ánni vegna mikillar hættu á krapaflóði.
Í dag verða þréttán leitarsvæði leituð og er mikill kuldi á leitarsvæðinu. Veðurspáin er þó hægstæð fyrir daginn í dag en mikill kuldi og ljóst er að leitarskilyrði eru mjög erfið á vettvangi. Leitarhópar lögðu af stað frá Akureyri kl. 09:00 í og verður leitað fram á kvöldið.
Vettvangsstjórn lögreglu og björgunarsveita er við félagsheimilið Sólgarð þaðan sem björgunarmenn fá úthlutuð verkefnum.
Aðgerðastjórn lögreglunnar / björgunarsveita er í aðstöðu Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við leit í gærdag, á meðan enn var leitað ofan í gilinu.