• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fyrstu leigjendur flytja inn fyrir jólin – einstæðir feður í hópi leigjenda

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. desember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fyrstu leigjendur flytja inn fyrir jólin

Öllum leiguíbúðum við Hádegisskarð í Skarðshlíð hefur verið úthlutað
Rúmlega 120 umsóknir bárust í þær 10 íbúðir sem auglýstar voru lausar til umsóknar við Hádegisskarð í Skarðshlíð. Þessum leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulægri einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að öruggu húsnæði í langtímaleigu. Opnað var fyrir umsóknir í upphafi október og rann umsóknarfrestur út um miðjan nóvember. Dregið var úr innsendum umsóknum og búið að skrifa undir leigusamninga við þá sem dregnir voru út og uppfylltu sett skilyrði. Fyrstu íbúarnir ætla sér að flytja inn fyrir jólin.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar

Tveir einstæðir feður í hópi leigjenda
Það er stór hópur fólks sem flytur inn í fallegar íbúðir við Hádegisskarðið á næstu dögum og vikum. Meðal nýrra leigjanda eru þeir Þórhallur Sigurðsson og Oddur Ingvarsson, einstæðir feður sem báðir eru með börn í umgengni hjá sér. Báðir hafa þeir búið í foreldrahúsum um nokkurt skeið og gefist upp á því kapphlaupi sem fylgt getur lífinu á leigumarkaði. Einnig eiga þeir börn sem búsett eru í nágrenni Skarðshlíðarhverfis og úthlutunin því kærkomin. „Það er afar ánægjulegt að sjá þessa nýju leið í þjónustu og verkefnum sveitarfélagsins verða að veruleika og tryggja þannig hópi fólks aðgang að nýju og öruggu húsnæði í langtímaleigu.  Ekki skemmir staðsetningin hér í Skarðshlíðinni fyrir þar sem stutt er í fallega náttúruna, glæsilegur leik- og grunnskóli tekinn til starfa og fjöldi húsa hreinlega hrannast upp þessa dagana þrátt fyrir kulda og vetrartíð. Þetta er mikil gleðistund.“ segir Rósa Guðbjartsdóttir sem afhenti nýjum leigjendum lyklana í dag.  Til framtíðar litið er gert ráð fyrir að reksturinn verði að fullu sjálfbær og ef vel tekst til þá ætti verkefnið að vera öðrum sveitarfélögum, félagasamtökum og verktökum hvatning til sambærilegra framkvæmda.
Um Skarðshlíð íbúðarfélag hses.
Skarðshlíð íbúðarfélag hses og Modulus eignarhaldsfélag gerðu með sér samning um uppbyggingu á íbúðum á lóðunum Hádegisskarð 12 og 16 í Skarðshlíð í maí 2018. Stofnaðili Skarðshlíðar íbúðarfélags hses er Hafnarfjarðarbær og er hugmyndafræðin til framtíðar að íbúar sjái sjálfir um stjórn og rekstur félagsins. Sjálfseignarstofnunin Skarðshlíð íbúðarfélag hses., sem stofnuð var í lok árs 2017, er rekin án hagnaðarsjónarmiða og hefur þann tilgang að byggja eða kaupa, eiga eða hafa umsjón með rekstri og viðhaldi almennra íbúða og veita þjónustu í almannaþágu samkvæmt lögum um almennar íbúðir.
Hafnarfjarðarbær óskar nýjum leigutökum innilega til hamingju með nýju heimilin.

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    88 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?