Trúnaðarmenn af vinnustöðum borgarinnar afhentu í dag borgarstjóra Reykjavíkur áskorun um að borgin gangi frá samningum við starfsfólk sitt. Undirskriftarlistar hafa gengið á vinnustöðum og söfnuðust tæplega 1000 undirskriftir.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri tók vel á móti hópnum og sagðist sammála því að klára þyrfti samningana sem fyrst á sanngjarnan máta. Þó hann væri ekki bjartsýnn á það næðist fyrir jól sagðist hann vona að allir gætu verið stoltir af þeim þegar þeir líta dagsins ljós.
——————————
Eftir hrun skar Reykjavíkurborg niður í rekstri. Sú ráðstöfun hefur enn ekki gengið til baka með þeim afleiðingum að starfsfólk borgarinnar innan Eflingar býr við ólíðandi álag og óásættanleg kjör.
Efling hefur gert hverja tilraunina á fætur annarri til að rétta hlut borgarstarfsmanna frá því í vor. Lagðar hafa verið fram sanngjarnar kröfur um minna álag, mannsæmandi laun og styttri vinnuviku.
Hver vonbrigðin hafa rekið önnur í samningaviðræðunum. Reykjavíkurborg hafði forystu um tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar fyrir örfáum árum. Jákvæður árangur verkefnisins er ótvíræður. Engu að síður dregur borgin lappirnar í þessu mikla framfaramáli og samningar hafa ekki náðst.
Borgin er í höndum Eflingarfólks á hátt í 200 vinnustöðum borgarinnar. Þessi lægst launaði hópur í samfélaginu á skilið mannsæmandi líf.
———————————
Áskorun félaga í Eflingu til borgaryfirvalda:
Við styðjum samninganefnd okkar í Eflingu!
Okkar vinna heldur borginni gangandi.
Við þrífum, fegrum og viðhöldum borginni, eldum mat, sinnum heimaþjónustu, önnumst börn, aldrað og fatlað fólk.
Það er einlægur metnaður okkar að veita sem besta þjónustu og geta unnið af fagmennsku við að hlúa að íbúum borgarinnar og umhverfi.
Þrátt fyrir það erum við á lægstu launum og undir sífellt meira álagi. Eftir áralangan niðurskurð krefjumst við leiðréttingar líkt og efri lög í samfélaginu hafa hlotið.
Tryggja þarf aukna mönnun, styttri vinnuviku og rækilega launahækkun svo við getum sinnt störfum okkar af alúð og virðingu og látið enda ná saman.
Við hvetjum borgina til að sýna sama metnað í verki og við með auknum fjárveitingum.
Samningar okkar hafa nú verið lausir frá því í apríl.
Við stöndum þétt við bakið á samninganefnd Eflingar og skorum á samninganefnd Reykjavíkurborgar að ganga að kröfum okkar og semja án tafar!
Reykjavík er í okkar höndum!
Undirrituð, félagar Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg