Einn með 12,3 milljarða vinning í lottóinu
Stálheppinn miðaeigandi í Þýskalandi var einn með allar aðaltölurnar og báðar stjörnutölurnar réttar og hlýtur hann rúmlega 12,3 milljarða í vinning. 14 miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hljóta þeir rúmlega 191 milljónir króna í vinning hver. Vinningsmiðarnir voru keyptir í Danmörku, Ítalíu, Ungverjalandi, Finnlandi og 10 í Þýskalandi.
14 skiptu með sér 3. vinning og hlýtur hver um sig rúmlega 12,6 milljónir. Miðarnir vour keyptir í 2 í Noregi, Slóveníu, Slóvakíu, Ítalíu og 9 í Þýskalandi. Sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Kvikk, Hagasmára 9, Kópavogi, Olís Langatanga, Mosfellsbæ, einn var í áskrift og þrír á Lotto.is
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 4.699