• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 2. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bragi Þór Thoroddsen sveitastjóri: Sunnanátt með stórtjóni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. febrúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Denni dæmalausi eða Dennis the menace. Ekkert svosem að frétta hér annað en að strekkings vindur hefur gengið yfir, hlíðin lokuð í gær. En hvað er það svosem fyrir fólkið í Súðavíkurhreppi? N1, ekki þó fyrirtækið hans Bjarna, heldur enn einn dagurinn í paradís.
Já, þetta er paradís fyrir þá sem eru búnir að tóna sig aðeins niður og þurfa ekki caoz höfuðborgarsvæðisins. Jújú, auðvitað er Reykjavíkin lítil og falleg, yndisleg borg, Kópavogur enn betri. Hafnarfjörður geggjaður, Garðabær vagga velgengni og svona má lengi telja.
Það hafa ekki margir áhyggjur af veðri hér í Súðavík. Veðrið hefur höggvið skörð, bæði með flóði og skipssköðum, en allir eru meðvitaðir um hættuna. En það er ekki hægt að lifa við eilífan ótta um það að kannski gerist eitthvað.
Denni okkar hér er ekki veður heldur gerningaveður. Hann er mannanna verk og á uppruna sinn í Reykjavík. Af skrifstofum og bakherbergjum manna og kvenna með forræðishyggju og pínu hroka í garð landsbyggðar. Einkum og sér í lagi smásveitarfélaga. Hann virðist grassera í Sambandi íslenskra sveitarfélaga, í ráðuneytinu okkar samgöngu- og sveitarfélaga og hjá forsvarsmönnum sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins. Merkilegt nokk.
Þeir sem harðast ganga fram í þessu stefnumótunarstarfi sveitarfélaga virðast drifnir áfram. Skeyta engu og ætla að eira engu, vitandi það að þeir þurfa að troða fótum réttindi fólks sem býr í fámennum sveitarfélögum.
Lagafrumvarp er í samráðsgátt og er gefinn alveg tveggja vikna frestur til að skila athugasemdum. Þetta er lítt auglýst og hefur yfirbragð laumuspils. Má ætla að þeir sem að standa vilji ekki athygli landans á því sem verið er að gera. Fjölmiðlar hafa lítinn áhuga á þessu, sem er merkilegt þar sem sennilega hefur ekki átt sér stað víðtækari vanvirðing við lýðræðið og sjálfsakvörðunarrétt hér síðan á Kópavogsfundinum fyrir margt löngu.
Við hér í Súðavíkurhreppi munum gera okkur gildandi í að mótmæla þessum yfirgangi, enda er það vilji margra í sveitarfélaginu. Þess utan tel ég það skyldu mína sem löglærðs og framkvæmdastjóra sveitarfélagsins. Þvingun eins stjornvalds eða yfirvalds í garð annars ætti ekki að eiga sér stað í upplýstu, nútíma lýðveldi.
Þessi gerningur, að þvinga fram sameiningu sveitarfélaga, sem flest hver eru sjálfbær og sjálfstæð fjárhagslega mun hljóta sama dóm og önnur þvinguð sambönd.
Á sama tíma heyrist ákall m.a. frá Raufarhöfn um afskipt samfélag þar sem allt er skorið niður og lokað. Sömu sögu er að segja m.a. frá Bíldudal og einhverjar slíkar raddir víðar. Sameining við stærri sveitarfélög sem sölsa til sín kjarnastarfsemi og stjórnsýslu er ekki þeim minni til framdráttar eða hagsældar.
Ég mun halda áfram að leggja inn orð í þetta sem er að eiga sér stað, framhjá evrópskri samvinnu um sjálfsstjórnarrétt sveitarfélaga og þvert á gildandi sveitarstjórnarlög. Ráðherra málaflokksins hefur ekki áhuga á að ræða þetta, það kom berlega í ljós á fundi í Grenivík. Því ber að biðla annað. Þingmenn okkar Vestfirðinga virðast ekki heldur vilja verja sín héröð, en leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál.
Þrátt fyrir að ég hafi haft meiri trú á Borgarnes löggunni í Brot en fyrrum kollegi, Guðmundur Gunnarsson, er ég jafn sannfærður um sýn hans á það hvernig landinn horfir á landsbyggðina.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
  • Alþingismanni hótað

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Stjórnarsáttmáli sem Viðreisn og Samfylkingin meintu raunverulega ekki neitt með

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?