• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 23. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tryggingastofnun endurgreiðir kröfur vegna dráttarvaxtagreiðslna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. febrúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Í bréfi sem Tryggingastofnun sendi frá sér 4. febrúar s.l. kemur fram að stofnunin hafi ákveðið að fella niður eða endurgreiða kröfur vegna fjármagnstekna á árinu 2018. Þessar fjármagnstekjur voru dráttarvaxtagreiðslur sem Reykjavíkurborg greiddi í kjölfar dóms Hæstaréttar um að borginni væri óheimilt að mismuna íbúum borgarinnar nema málefnaleg rök lægju þar að baki.

Frekari upplýsingar um forsögu málsins má finna hér: https://www.obi.is/is/utgafa/frettir/refsad-fyrir-leidrett-ranglaeti
Öryrkjabandalagið hefur allt frá því ljóst var í hvað stefndi, unnið ötullega í málinu, en þrátt fyrir að hafa bent á ýmsar leiðir til að þeir einstaklingar sem um ræðir yrðu ekki fyrir skerðingu vegna fjármagnsteknanna, var komið að lokuðum dyrum.
Nú hefur Tryggingastofnun ákveðið að fella niður kröfur þessar, og endurgreiða þar sem það á við. Við vinnslu tillagna að tekjuáætlunum lífeyrisþega fyrir árið 2020 kom í ljós hjá stofnuninni að nauðsynlegt væri að afla betri upplýsinga um þá sem fengu umrædda dráttarvexti, svo dráttarvextirnir myndu ekki hafa áhrif inn í árið 2020 líka, þá til lækkunar lífeyrisréttinda þeirra sem fengu.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður ÖBÍ segist afar ánægð með þessa niðurstöðu. „Við höfum barist í þessu máli í rúmt ár, og upplifað það sterkt hversu flókið kerfið er og þungt í vöfum. Þetta er því einstaklega ánægjuleg niðurstaða, því nú er tryggt að  þessi niðurfelling nái til allra sem í hlut áttu.“
Og nú rúmu ári eftir að ÖBÍ vakti athygli ráðherra á málinu, hefur TR sent þeim sem um ræðir bréf um að ákveðið hafi verið að fella kröfurnar niður.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Gul viðvörun vegna veðurs

    Miðbærinn í Reykjavík undir sjávarborði samkvæmt spálíkunum

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Meðallaun 758.000 kr. – Yfirmenn með 2,4 milljónir

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Við verðum að skipta um gjaldmiðil – Siðblindan fer með völdin

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hringlandaháttur í veiðistjórnun

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Karlmaður kærði synjun um launað leyfi á kvennafrídeginum

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?