,,Sýnir skýrt hverju er hægt að áorka þegar fólk er lausnamiðað og hlustar hvert á annað“
Efling fagnar nýjum kjarasamningi við ríkið sem undirritaður var síðdegis í dag, með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Nú fer í hönd kynning á samningnum og undirbúningur atkvæðagreiðslu. “Viðræður okkar við ríkið hafa gengið vel nú á lokametrunum og sýna skýrt hverju er hægt að áorka þegar fólk eru lausnamiðað og hlustar hvert á annað,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Efling – stéttarfélag hefur undirritað kjarasamning við ríkið. Samningurinn felur í sér taxtahækkanir að fyrirmynd Lífskjarasamningsins og styttingu vinnuvikunnar. Jafnframt fylgja honum viðbótaraðgerðir sem munu styrkja hugmyndafræðina um sérstakar hækkanir láglaunafólks og koma til móts við kröfuna um leiðréttingu á kjörum kvennastétta. Gildistími samningsins er langur eða til 31. mars 2023.
Samningurinn tekur til verkafólks mestmegnis á Landspítalanum en einnig í öðrum stofnunum ríkisins á félagssvæði Eflingar. Um er að ræða störf við umönnun, þrif, þvotta, í mötuneytum og fleira. Undir samningnum starfa um 540 félagsmenn, þar af um 80% konur.
Samkvæmt samningnum kemur fjárveiting til innröðunar starfsfólks í nýja launatöflu í ársbyrjun 2021. Þetta mun leiða til dýrmætrar leiðréttingar á kjörum starfsfólks.
Samninganefnd ríkisins ásamt samninganefnd Eflingar gagnvart ríkinu undir formennsku Sólveigar Önnu Jónsdóttir undirritaði samninginn í húsakynnum Ríkissáttasemjara síðdegis í dag.
„Viðræður okkar við ríkið hafa gengið vel nú á lokametrunum og sýna skýrt hverju er hægt að áorka þegar fólk eru lausnamiðað og hlustar hvert á annað,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. „Ég mun mæla með þessum samningi við mína félagsmenn enda eru í honum mikilvæg skref í átt að því sem Efling hefur sóst eftir í viðræðum við ríki og sveitarfélög. Ég er bjartsýn á hann verði samþykktur af félagsmönnum okkar á Landspítalanum og öðrum ríkisstofnunum.“
Félagið mun kynna samninginn og boða til atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna eins fljótt og auðið er.
https://gamli.frettatiminn.is/efling-bydur-tveggja-daga-verkfallshle-gegn-stadfestingu-a-kastljosstilbodinu/