• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Starfsmenn skóla starfi þó nemendur eða starfsfólk sé sent heim vegna Covid-19

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kennsla heldur áfram

Á vef Stjórnarráðsins / Mennta- og menningarmálaráðuneytisins segir: Yfirlýst neyðarstig almannavarna hefur bein og óbein áhrif á skólastarf í landinu. Skólastjórnendur og kennarar hafa sýnt mikla yfirvegun við þessar óvenjulegu aðstæður og horft til fyrirmæla í nýsamþykktri landsáætlun sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra :
• Skólar munu halda uppi starfsemi eins lengi og unnt er.
• Markmið er að starfsmenn skóla haldi áfram störfum þó nemendur eða starfsfólk sé sent heim vegna sóttvarnaráðstafana.
• Skipuleggja [skal] hlutverk kennara í fjarkennslu og heimanámi.
• Skrá [skal] sérstaklega fjarvistir nemenda og starfsmanna vegna viðkomandi veikinda.
• Hugað verði að því að nemendum í brotthvarfshættu bjóðist stuðningur námsráðgjafa þar sem því verður við komið.
Að sama skapi hafa nemendur og foreldrar almennt sýnt ábyrgð og lagt sitt af mörkum við að hefta útbreiðslu veirunnar sem orsakar Covid-19. Fyrir það ber að þakka.
Rík áhersla er lögð á upplýsingamiðlun skólastjórnenda til nemenda og forráðamanna. Meðal annars varðandi upplýsingar frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnarlækni og upplýsingamiðlun ef upp kemur smit í starfsmanna- eða nemendahópi.
Rétt er að ítreka að skólastarf er í fullum gangi. Komi til samkomubanns á síðari stigum munu skólar vinna eftir uppfærðum áætlunum, enda er mikilvægt að skólastarf haldi áfram þótt aðstæður breytist. Almennt er miðað við að kennarar mæti til vinnu í samkomubanni og sinni sínum störfum með fjarkennslu þar sem henni verður komið við, gerð heimaverkefna o.s.frv. Vinnulag og samskipti á vinnustað skulu vera í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnarlæknis og almannavarna og skólar upplýsa nemendur og forráðamenn um skipulag námsins á meðan samkomubanni stendur.
Hvatt er til þess að skólar hugi vel að andlegri líðan nemenda og nýti fagþekkingu starfs- og námsráðgjafa, sálfræðinga og annarra eftir atvikum. Þá er keppt að því að veita skjót svör við spurningum sem kunna að vakna hjá nemendum, foreldrum og forráðamönnum.
Til glöggvunar hefur ráðuneytið tekið saman svör við nokkrum algengum spurningum sem tengist skólastarfi á neyðarstigi almannavarna.
Ítarlegri upplýsingar verða veittar eftir því sem aðstæður breytast, en að sinni eru ekki fyrirhugaðar breytingar á skólahaldi, sem halda skal úti eins lengi og hægt er samkvæmt landsáætlun. Mennta- og menningarmálaráðuneytið telur skólakerfið vel í stakk búið að takast á við núverandi aðstæður og reiðubúið að takast á við fleiri áskoranir, ef til þeirra kemur.“ Segir á vef Stjórnarráðsins

Öllum skól­um lokað í Dan­mörku

https://gamli.frettatiminn.is/ollum-skolum-lokad-i-danmorku/
.
.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Alþingismanni hótað

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?