• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Erum ekki öll á sama báti – Réttindi fólks besta vörnin gegn veirunni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. mars 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Drífa Snæda skrifar

Ég ætla ekki að fjölyrða um erfiðleikana sem við stöndum frammi fyrir, við erum öll upplýst um þá en við skulum passa okkur á þeirri klisju að við séum öll í sama báti. Við erum það ekki.
Aðstæður fólks eru mjög misjafnar. Sumir hafa borð fyrir báru í orlofsdögum, veikindarétti og jafnvel sparifé á meðan lítið má út af bregða hjá öðrum. Við erum sem sagt ekki öll í sama báti og höfum aldrei verið.
Við þurfum hins vegar að sannmælast um aðgerðir sem tryggja hag almennings en ekki sérhagsmuna, vernda þá sem verst standa og á sama tíma ná markmiðum um að hefta útbreiðslu veirunnar.
Alþýðusambandið er í samskiptum við stjórnvöld og atvinnurekendur um nauðsynleg fyrstu viðbrögð til að tryggja afkomu fólks, en sú trygging mun ráða úrslitum um hvort hægt sé að hægja á útbreiðslu COVID-19. Þau lönd sem beita samfélagslegum lausnum og hafa almannakerfi til að styðjast við standa miklu betur að vígi en þau lönd þar sem hver verður að bjarga sjálfum sér. Það er ekki tilviljun að fyrsta verk ríkisstjórna Norðurlandanna var að tryggja greiðslur til fólks í veikindum eða sóttkví, það er besta vörnin. Næsta vers er að bregðast fljótt og örugglega við öðrum þáttum og við munum næstu daga móta þær aðgerðir sem við teljum brýnastar til lengri og skemmri tíma.
Ein stærsta hættan í óvissuástandi, hamförum eða efnahagsþrengingum er að hlaupið sé til og teknar afdrifaríkar ákvarðanir sem veikja kerfi sem eiga að tryggja almannahag. Við búum að því í dag að ekki var gripið til stórfelldrar einkavæðingar eða verðmætar þjóðareignir seldar í hruninu fyrir tólf árum. Það réði úrslitum um að kreppan varð ekki dýpri.
Það er stefnt að því að síðar í dag berist fréttir af ráðstöfunum til að tryggja hag vinnandi fólks, bæði sem er í sóttkví og þess sem starfar hjá fyrirtækjum sem þurfa að draga saman seglin. Frekari tillögur og kröfur verkalýðshreyfingarinnar verða svo kynntar næstu daga.
Verndum kerfin okkar, hóstum í klúta, þvoum og sprittum!
Góða helgi,
Drífa

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Alþingismanni hótað

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?