• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ráðleggingar stjórnvalda til Íslendinga vegna ferðalaga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Íslensk stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja Íslendinga á ferðalagi erlendis til að íhuga að flýta heimför. Er þetta gert að tillögu utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í ljósi þeirra yfirgripsmiklu ráðstafana sem erlend ríki hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 og kunna að hafa áhrif á Íslendinga erlendis.
Mörg erlend ríki hafa undanfarinn sólarhring gripið til þess að loka landamærum og skylda alla sem þangað koma í sóttkví. Ekki er hægt að útiloka að fleiri ríki muni grípa til svipaðra ráðstafana á næstu dögum. Það er mat utanríkisráðuneytisins, að höfðu samráði við forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra, sóttvarnarlækni og almannavarnir, að tímabært sé að ráða Íslendingum formlega frá því að leggja upp í ferðalög. Þá eru Íslendingar á ferðalagi erlendis beðnir að íhuga hvort ástæða sé til að flýta heimför með tilliti til ofangreindra þátta og Íslendingar búsettir erlendis hvattir til að kanna rétt sinn til heilbrigðisþjónustu.
„Með þessum ráðleggingum er brugðist við þeirri stöðu sem upp er komin vegna viðbragða margra ríkja við faraldrinum sem nú geisar. Þær hafa að sjálfsögðu mikil áhrif á samfélag okkar og stöðu Íslendinga á ferðalögum erlendis,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
„Víða eiga Íslendingar á hættu að verða innlyksa eða lenda í sóttkví við erfiðar aðstæður. Ekki er víst hvaða aðgang og réttindi Íslendingar munu hafa að heilbrigðisþjónustu auk þess sem heilbrigðiskerfi í mörgum ríkjum anna ekki álagi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. „Í því ljósi höfum við ákveðið að ráða Íslendingum gegn ferðalögum erlendis og þeim sem eru á ferðalagi erlendis að íhuga að snúa heim fyrr en ella.“
Áfram gilda skilgreiningar sóttvarnarlæknis um áhættusvæði og tilmæli hans um að Íslendingar sem þaðan komi fari í sóttkví. Ekki er gert ráð fyrir að takmarka ferðir erlendra ferðamanna hingað til lands.
Utanríkisráðuneytið og sendiskrifstofur Íslands hafa unnið að því síðasta sólarhring að afla upplýsinga frá stjórnvöldum ríkja um hvernig flugi og öðrum samgöngum verður háttað yfir landamæri til að tryggja að Íslendingar komist heim. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur aukið símsvörun og svörun fyrirspurna sem berast með tölvupósti á hjalp@utn.is. Þá eru Íslendingar erlendis hvattir til að skrá sig í grunn borgaraþjónustunnar á www.utn.is til að hægt sé að miðla til þeirra upplýsingum þegar þær berast.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?