• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 30. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samvinnuverkefni geta skapað allt að 4.000 ársverk

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur lagt fram frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Markmið laganna er auka verulega fjármagn til vegaframkvæmda og mæta mikilli þörf fyrir fjárfestingar í samgöngum, bæta umferðaröryggi og stytta og bæta vegtengingar milli byggða. Áætlað er að samvinnuverkefnin geti skapað allt að 4.000 ársverk.

Sigurdur Ingi Jóhannsson

„Það er ljóst er að jafn umfangsmiklar framkvæmdir, eins og samvinnuverkefnin boða, skapa mikinn fjölda ársverka, bæði hjá verktökum en ekki síður hjá ráðgjöfum og hönnuðum. Áætla má að í heild verði til á bilinu 3.000-4.000 ársverk. Þau mynda einnig sterkan hvata til nýsköpunar sem getur lækkað kostnað og stytt framkvæmdatíma,“ segir Sigurður Ingi.
„Öll verkefnin fela í sér styttingu vega ásamt því að stuðla að bættu umferðaröryggi. Vegastytting minnkar ferðatíma fólks og dregur úr flutningskostnaði fyrir fyrirtæki. Síðast en ekki síst felst í þessu umtalsverður umhverfisávinningur með minni losun gróðurhúsalofttegunda og annarrar umferðartengdrar mengunar.
Samvinnuverkefnin bætast við allar vegaframkvæmdir sem fjármagnaðar eru með hefðbundnum hætti á fjárlögum en í nýjustu samgönguáætlun voru framlög aukin um fjóra milljarða á ári næstu fimm árin miðað við fyrri áætlanir,“ segir ráðherra.
Með lögunum verður Vegagerðinni heimilt, að undangengnu útboði, að eiga samvinnu við einkaaðila um fjármögnun, hönnun, undirbúning og framkvæmdir við sex afmörkuð verkefni ásamt viðhaldi og rekstri í tiltekinn tíma. Þá verður heimilt að fjármagna samvinnuverkefni að hluta eða öllu leyti með gjaldtöku af umferð. Gjaldtaka skal þó ekki hefjast fyrr en framkvæmdum lýkur og stendur að hámarki í 30 ár.
Í öllum framkvæmdunum munu vegfarendur hafa val um aðra leið og greiða ekki gjald á þeirri leið. Þær stuðla ennfremur allar að auknu umferðaröryggi. Í lok samningstíma teljast mannvirki eign ríkisins án sérstaks endurgjalds.
Þau verkefni sem lagt er til að verði unnin sem samvinnuverkefni eru:

  • Hringvegur norðaustan Selfoss og brú á Ölfusá
  • Hringvegur um Hornafjarðarfljót
  • Axarvegur
  • Tvöföldun Hvalfjarðarganga
  • Hringvegur um Mýrdal og jarðgöng í Reynisfjalli
  • Sundabraut

Af þessum verkefnum er brú yfir Hornafjarðarfljót fullhannað og hægt að hefja framkvæmdir á árinu og brú yfir Ölfusá er á lokastigi í hönnun.

Margvíslegur ávinningur

Ýmsar ástæður eru fyrir því að leitað hefur verið til einkafyrirtækja um að koma í auknum mæli að uppbyggingu samgöngukerfa. Í fyrsta lagi geti samvinnuverkefni verið leið til þess að viðhalda fjárfestingu í erfiðu árferði. Í öðru lagi væru þau leið til að virkja kosti einkaframtaks í samgöngum, nánar tiltekið nýsköpun og sveigjanleika í uppbyggingu og viðhaldi vegakerfisins. Í þriðja lagi geti þau stuðlað að því að skattgreiðendur fái meira fyrir peningana sína, þjónustan verði betri og að áhættuskipting milli hins opinbera og einkaaðila verði hagfelld. Að lokum hafi reynsla erlendis frá sýnt að einkaaðilar ná að jafnaði að ljúka við framkvæmdir á styttri tíma en opinberir aðilar, ekki síst þar sem opinberri fjármögnun er oft dreift á mun lengri tíma en þörf er á framkvæmdarinnar vegna.

Langur undirbúningur

Frumvarpið hefur verið í undirbúningi um langt skeið. Í skýrslu starfshóps um fjármögnun samgangna frá apríl 2019 sagði að samvinnuverkefni (PPP) væru fýsileg í þeim tilvikum þar sem þau væri raunhæfur kostur, þ.e. í stórum og vel skilgreindum nýframkvæmdum. Áform um frumvarpið voru kynnt í júlí 2019 og drög að frumvarpi kynnt í samráðsgátt í nóvember sama ár. Áformin eru einnig í tillögu að samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034.

Hugtakið samvinnuverkefni

Hugtakinu samvinnuverkefni er svo lýst í frumvarpinu: „Verkefni þar sem einkaaðili annast fjármögnun í heild eða að hluta eða tekur með öðrum hætti áhættu af gerð og rekstri opinbers mannvirkis, eftir atvikum með heimild til gjaldtöku fyrir notkun mannvirkisins á rekstrartíma. Samvinnuverkefni felur að jafnaði í sér samvinnu um eftirtalið: fjármögnun, áætlanagerð, hönnun, uppbyggingu mannvirkja, viðhald, rekstur og annað sem nauðsynlegt er til að ljúka megi framkvæmd og reka mannvirki í tiltekinn tíma.“

  • Skoða lagafrumvarp á vef Alþingis
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    833 deilingar
    Share 333 Tweet 208
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Bankarnir hóta viðskiptavinum

    528 deilingar
    Share 211 Tweet 132
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?