Ísland mun taka þátt í takmörkunum á ónauðsynlegum ferðum ásamt öðrum Schengen ríkjum. Bannið mun ekki hafa bein áhrif á vöruflutninga heldur á þetta einungis við um ferðamenn utan Schengen sem verður þá ekki lengur heimilt að koma til landsins. En komu ferðamanna er að mestu sjálfhætt vegna veirunnar.
Þrátt fyrir að takmarkanir á ferðum hafi ekki verið ofarlega hjá okkar sérfræðingum sem árangursrík aðferð gegn útbreiðslu kórónuveirufaraldursins þá hefur verið biðlað til okkar að taka þátt í lokun landamæra ESB- og Schengen-ríkjanna og við eigum óhægt um vik að skorast undan því.
Alþjóðlegt og svæðisbundið samstarf ríkja er mikilvægt í baráttunni við veiruna og við þurfum á samstarfi ESB- og EES-ríkjanna að halda. Á grundvelli þess og mati á okkar hagsmunum þá munum við taka þátt í aðgerðum Schengen-ríkjanna og loka hér ytri landamærum.
Við höfum ítrekað bent á okkar sérstöðu innan svæðisins síðustu daga. Við erum eyja langt frá öðrum löndum og við eigum meira undir flugsamgöngum og við höfum því beðið um að sérstakt tillit verði tekið til okkar þegar við sjáum fyrir að við viljum fara aflétta þessari lokun. Segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra dómsmálaráðherra um ferðamenn utan Schengen.
https://www.facebook.com/aslaugarna/posts/1462970853873732

Umræða