• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 31. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tífalt meiri snjóblástur fyrir vestan – Myndband

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Myndband af snjómokstri á Flateyrarvegi (64)

Elvar Sigurgeirsson sinnir vetrarþjónustu fyrir Vegagerðina á Flateyrarvegi (64). Haukur Sigurðsson ljósmyndari fyrir vestan hitti á Elvar þar sem hann var við störf 20. mars síðastliðinn. Elvar var þá að mjaka sér í gegnum gríðarlega snjóskafla. „Þetta hefur gengið vel miðað við snjómagn, ætli þetta séu ekki rétt rúmir fimm metrar,“ segir Elvar en vélin sem hann vinnur á er 4,20 metrar en á myndbandinu sést að snjórinn nær um meter yfir hana. „Þetta er búið að vera mjög leiðinlegur vetur og erfiður samgöngulega séð. Það er búið að vera ófriður síðan um miðjan desember.“
Í fyrra notaði Elvar snjóblásarann í um 49 tíma allan veturinn. Það sem af er vetri hefur hann þurft að nota blásarann í nærri 500 tíma, tíu sinnum fleiri en í fyrra. Þetta staðfesta tölur frá þjónusviði Vegagerðarinnar sem Bjarni Már Gauksson á vegaþjónustudeild hefur tekið saman.

Einn verktaki fór í kringum jörðina á hálfum mánuði

Þann 24. mars 2020 var akstur snjómoksturstækja á landsvísu kominn í 1.661.000 km sem er talsvert meiri en allur heildarakstur síðasta vetrar 2018-2019 sem var 1.422.639 km. Vinna við snjómokstur og hálkuvarnir þennan veturinn er því nú þegar orðinn 16 prósentum meiri en síðastliðinn vetur. Verði það sem eftir lifir vetrar svipað fyrri vetrum má búast við að enn eigi eftir að bætast hundrað þúsund kílómetrar eða fleiri við núverandi stöðu.
Veturinn 2019-2020 byrjaði raunar rólega og voru vetrarverkin færri en við var búist frá 15. september til 16. desember. Síðan bætti í og hefur verkmagn haldist nokkuð hátt frá mánaðarmótum nóvember- desember að undanskildu tímabilinu 1. til 15. febrúar.
Erfiðustu tímabilin voru dagana 1. til 15. janúar og 16. til 28. febrúar. Þá daga sem mest var ekið í snjómokstri og hálkuvörnum var akstursmagnið yfir 20 þúsund kílómetrar á sólarhring. Lang mest var ekið 28. febrúar þegar eknir voru 28.600 kílómetrar á einum sólarhring. Mesta akstursmagn einstaks verktaka á 15 daga tímabili var um 42.000 km eða rúmlega ummál jarðarinnar.

Djúpur snjór fyrir vestan og þörf á blásurum

Byrjun þessa árs hefur verið æði erfið fyrir vetrarþjónustuna. Þegar hafa verið eknir um 150 þúsund fleiri kílómetrar en áætlanir gerðu ráð fyrir en einnig hafa verið unnir fjölmargir vélartímar í útmokstri og snjóblæstri.
Á leiðinni milli Þingeyrar, Flateyrar og Suðureyrar, sem Elvar Sigurgeirsson ekur meðal annars, er akstursmagn komið í 35.587 km en heildar akstursmagn síðasta vetrar var 25.623 km á þessari leið og veturinn 2017-2018 voru eknir þar 29.549 km. Líkt og Elvar benti á er vélartími snjóblásara kominn í um 500 tíma en í fyrra var hann notaður í um 49 tíma.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Utankjörfundaratkvæðagreiðslur á Kanaríeyjum og Torrevieja

    Alþingismanni hótað

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    52 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Málþóf stjórnarandstöðunnar enn á ný vegna sérhagsmuna

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?