• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 28. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Mótmæla kröfu um launalækkanir og skert starfshlutföll

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Viðskiptaráð í gömlum stellingum

Bandalagi háskólamanna sendi frá sér neðangreinda yfirlýsingu þar sem mótmælt er kröfu um launalækkanir og skert starfshlutföll vegna kórónafaraldursins
Stjórn BHM mótmælir harðlega tillögum Viðskiptaráðs um að launakjör opinberra starfsmanna og starfshlutföll verði skert vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa af völdum COVID-19 faraldursins. Að mati BHM eru tillögurnar vanhugsaðar og myndu valda stórskaða kæmu þær til framkvæmda. Það veldur vonbrigðum að Viðskiptaráð skuli setja sig í gamlar stellingar gagnvart hinu opinbera við þessar aðstæður í samfélaginu.
Mikið mæðir nú á starfsfólki ríkis og sveitarfélaga, einkum þeim sem sinna framlínustörfum í heilbrigðis- og menntakerfinu en einnig þeim sem sinna margvíslegri stjórnsýslu, stoðþjónustu og fleiri störfum.
Faraldurinn bætist ofan á það álag sem fyrir var í þessum geirum og öllum er kunnugt um. Það vekur furðu að Viðskiptaráð skuli við þessar aðstæður kjósa að fara fram með kröfur um enn meiri niðurskurð hjá hinu opinbera. Ljóst er að slíkar ráðstafanir gætu lamað lífsnauðsynlega þjónustu og myndu valda miklum samfélagslegum skaða.
Vegna ástandsins hafa verkefni dregist verulega saman hjá mörgum fyrirtækjum í einkageiranum eða jafnvel horfið alveg. Ríkisvaldið kemur til móts við fyrirtækin með því að greiða laun starfsmanna að stórum hluta, með frestun eða niðurfellingu opinberra gjalda, með ríkisábyrgðum á lánveitingum og fleiri ráðstöfunum.
Hjá mörgum opinberum stofnunum hefur verkefnunum hins vegar fjölgað vegna kórónafaraldursins. Það skýtur skökku við og er ámælisvert að Viðskiptaráð skuli við þessar aðstæður krefjast launalækkana og skertra starfshlutfalla hjá opinberum starfsmönnum. Kröftum samtaka á borð við Viðskiptaráð væri betur varið í önnur verkefni en að beita sér fyrir niðurskurði opinberrar þjónustu á víðsjárverðum tímum.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sameining Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

    Efast um réttmæt vinnubrögð atvinnuvegaráðherra

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Tesla með falleinkunn í fyrstu aðalskoðun

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Hækkun tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    94 deilingar
    Share 38 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?