Áfengisfrumvarpið gengur gegn öllum lýðheilsumarkmiðum samfélagsins og þvert á allt forvarnastarf og rannsóknir
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum mótmæla harðlega frumvarpi Sjálfstæðisflokksins sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra lagði fyrir ríkisstjórina í dag um að leggja niður einkaleyfi ÁTVR á áfengi. Samtökin furða sig á frumvarpinu og á síðu þeirra rökstyðja samtökin mál sitt og segja þetta m.a. vegna greinar í Fréttablaðinu um frumvarpið:
,,Forgangsmál? …greinilega. Lagt fyrir ríkistjórn í dag 31/3 2020 (FB)
Vefsöluleyfi áfengis sem kostar eitthvert smáræði og hver sem er getur farið í að selja áfengi (jafnt einstaklingar sem lögaðilar eins og segir í greinargerð) – Lítið app til þess að panta í gegnum, þess vegna á staðnum, sem allt eins getur verið hvaða verslun sem er eða hjá hvaða einstakling sem er.
Sölukerfi áfengis í grundvallaratriðum rústað – Ítrustu viðskiptahagsmunir í öndvegi.
Frumvarpið gengur gegn öllum lýðheilsumarkmiðum samfélagsins, þvert á allt forvarnastarf gagnvart börnum og ungmennum og gegn öllum helstu velferðarsjónarmiðum.
https://www.facebook.com/foreldrasamtok/posts/2409341545833301