• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Varað við hafís undan Vestfjörðum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ísinn var næst landi um 43 sjómílur norðvestur af Straumnesi

Landhelgisgæslan varar við hafís undan Vestfjörðum. Við eftirlit varðskipsins Þórs kom áhöfnin auga á hafísinn sem var rétt utan við Halann. Ísbrúnin lá í norðaustur og klukkan 16 í gær var ísinn næst landi um 43 sjómílur norðvestur af Straumnesi.
Halldór Nellett, skipherra á Þór, segir ísinn vera tættan enda norðlægar áttir á svæðinu. Ísinn rekur hratt til suðsuðvesturs og sést illa á ratsjá. Varðskipið Þór fylgdi ísröndinni eftir um punktana sem sjá má hér að neðan en að auki má finna íshrafl og ísmola utan svæðisins.
1.67°02N-025°29V
2.67°08N-025°12V
3.66°57N-025°01V
4.66°52N-024°50V
5.66°55N-024°32V
6.66°59N-024°21V.
Veður og vindar voru með þeim hætti Landhelgisgæslunni þótti líklegt að hafís væri á svæðinu og gæti rekið hratt að landi. Þá var gripið til þess ráðs að leita til Ingibjargar Jónsdóttur, hafísfræðings hjá Veðurstofunni, sem brást skjótt við og veitti Landhelgisgæslunni afar góðar gervitunglamyndir sem nýttust áhöfninni á Þór vel við hafíseftirlitið. Meðfylgjandi myndir sýna ísinn frá sjónarhorni áhafnarinnar á Þór auk siglingarleiðar skipsins.

20200331_163025Hafísinn var næst landi um 43 sjómílur norðvestur af Straumnesi.
IsSiglingarleið varðskipsins Þórs.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    Nýtt flugfélag í Keflavík

    76 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Eftirlýst kona handtekin

    98 deilingar
    Share 39 Tweet 25
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?