• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 30. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hundruð íbúða að rísa í Hamranesi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Viðtökur lóðaúthlutunar afar jákvæðar fréttir inn í hafnfirskt samfélag“ segir bæjarstjóri

Hafnarfjarðarbær óskaði á haustmánuðum 2019 eftir áhugasömum þróunaraðilum til þátttöku í uppbyggingu byggðar á fjórum reitum í fyrsta áfanga Hamraness í Hafnarfirði. Alls bárust 11 umsóknir. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar staðfesti, á fundi sínum sl. miðvikudag, tillögu bæjarráðs um úthlutun reitanna til fjögurra hópa sem samsettir eru af arkitektum, hönnuðum og byggingaraðilum og tekið hafa höndum saman við mótun áhugaverðra hugmynda fyrir svæðið. Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar fari í sölu innan tveggja ára.

Bregðast við þörf á markaði

Ákveðið var að fara óhefðbundna leið við úthlutun fyrstu reita á þessu nýja 25 hektara byggingarsvæði sem stendur við uppland Hafnarfjarðar. Þannig var óskað eftir umsóknum frá samstarfshópum um þróun fyrstu reitanna í fyrsta áfanga svæðisins með það fyrir augum að bregðast við þörf á markaði og sjónarmiðum.
Fyrirkomulagið og framkvæmdin skapar samstarfsvettvang fyrir hugmyndir um minni íbúðir, byggingakostnað, sjálfbærni, endurvinnslu, ferðakostnað og breytt búsetuform. „Hugmyndin er að skipulag þessa svæðis endurspegli þörf á markaði. Það er mikil eftirspurn eftir fallegum íbúðum á góðu verði. Við viljum mæta þessari eftirspurn á einu fallegasta og fjölskylduvænasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. ,,Það er ákaflega ánægjulegt að finna fyrir þessum mikla áhuga á svæðinu. Viðtökurnar eru afar jákvæðar fréttir inn í hafnfirskt samfélag, ekki síst á þessum tímum sem við erum að ganga í gegnum.“
Hóparnir fjórir sem fengu úthlutun voru 1) Arkís, Verkís og Circular solutions með reit fyrir 75 íbúðir, 2) Verkland, VSÓ ráðgjöf, Tendra og Klinka með reit fyrir 50 íbúðir, 3) Prospectus með reit fyrir 75 íbúðir og 4) GP arkitektar, X-JB ehf og VSÓ ráðgjöf ehf með reit fyrir 110-130 íbúðir. Skipulagsvinna í Hamranesi er komin vel á veg og er gert ráð fyrir að fleiri lóðum í 1. áfanga svæðisins verði úthlutað á næstu vikum. Þrjár lóðir í 1. áfanga eru ætlaðar íbúðafélaginu Bjargi og er þar gert ráð fyrir uppbyggingu um 150 íbúða. Skarðshlíðarhverfi sem liggur við að Hamranesi rís hratt þessa dagana. Frumbyggjar fluttu inn í hverfið síðasta sumar og rekstur leik- og grunnskóla í hverfinu kominn á fullt. Íþróttahús og útibú tónlistarskóla verða afhent í sumar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Laxveiðiám lokað fyrir stangaveiði vegna laxeldis

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Reimar Pétursson og Matthías G. Pálsson skipaðir í embætti við Endurupptökudóm

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?