• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Flugi aflýst, hvaða rétt á ég?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. apríl 2020
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Félagsmenn Neytendasamtakanna hafa kvartað yfir því að Icelandair aflýsir ekki flugi nema með minna tveggja sólarhringa fyrirvara, jafnvel þó fullljóst sé að ekki verði af fluginu löngu fyrr. Þá hefur samtökunum borist tilkynningar um að Icelandair bendi ekki á öll réttindi sem farþegar eiga kost á lögum samkvæmt. Fyrirtæki mega bjóða inneign í stað endurgreiðslu en að sama skapi getur það einnig verið réttur neytanda að fá fulla endurgreiðslu.
Félagsmenn Neytendasamtakanna geta haft samband við samtökin og fengið frekari upplýsingar og aðstoð, sé þess óskað. Álag á símkerfið er mikið um þessar mundir og eru félagsmenn hvattir til að senda tölvpóst (ns@ns.is) með nafni, símanúmeri og hvað málið varðar. Sértu félagsmaður, verður haft samband við þig eins fljótt og auðið er. Hægt er að skrá sig hér.
Það er kýrskýrt ef flugfélag fellir niður flug að þeim beri að bjóða farþega upp á þrjá valmöguleika eins og sjá má á vef Samgöngustofu.
En það virðist sem Icelandair bendi farþegum sínum ekki á þann kost sem nærtækastur er, það er að segja að fá flugferðina endurgreitt að fullu. Ber þá flugrekanda að endurgreiða flugfargjaldið, skatta og öll önnur gjöld að fullu innan 7 daga frá aflýsingu flugs. Um þetta er meðal annars fjallað í 8. gr. Evrópureglugerðar EB 261/2004 um réttindi flugfarþega.
Icelandair gerir farþegum sínum kleift að samþykkja inneignarnótur á einfaldan hátt, með nokkrum smellum úr tölvupósti sem þeim er sendur. En því miður er þeim gert óþarflega flókið að sækja endurgreiðslu.  Þannig erIcelandair ekki með beinan hlekk á eyðublaðið til þess að setja fram kröfur um endurgreiðslu, heldur þarf að vafra hingað:  https://www.icelandair.com/support/contact-us/flight-disruptions/
Þá þarf að velja „Delay – Cancelation Assistance“ í flettivalslistanum. Þá þarf að fylla út eyðublaðið. Í neðsta dálknum undir „Comments“ skal skrifa eitthvað á borð við:
„Ég hafna tillögum að  breytingum og óska eftir fullri endurgreiðslu á flugmiðum umræddrar bókunar innan 7 daga eins og lög gera ráð fyrir.“
Það vekur athygli og spurningar að mun auðveldara er að fá inneign en endurgreiðslu, en það er sjálfsögð krafa að gera þessa tvo valmöguleika jafneinfalda.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    Nýtt flugfélag í Keflavík

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    81 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Eftirlýst kona handtekin

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?