• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Endurgreiðsla æfingagjalda vegna Covid-19

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. apríl 2020
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Neytendasamtökin eru ekki að öllu leyti sammála því sem fram kemur í tilmælum frá ÍSÍ og UMFÍ, að íþróttaiðkendur geti ekki krafist endurgreiðslu æfingagjalda vegna æfinga sem ekki fara fram með þeim hætti sem til stóð. Því vilja samtökin varpa ljósi á rétt neytenda í þessum og sambærilegum málum.

Félagsmenn Neytendasamtakanna geta haft samband við samtökin og fengið frekari upplýsingar og aðstoð, sé þess óskað. Álag á símkerfið er mikið um þessar mundir og eru félagsmenn hvattir til að senda tölvpóst (ns@ns.is) með nafni, símanúmeri og hvað málið varðar. Sértu félagsmaður, verður haft samband við þig eins fljótt og auðið er. Hægt er að skrá sig hér.

Á þessum eindæma tímum hafa mörg, ef ekki flest öll, námskeið fallið niður eða verið frestað. Hafa skólar og félög reynt að koma til móts við sína viðskiptavini með því að bjóða upp á fjarkennslu. Fjarkennslan er með ýmsu móti; iðkendur fá sent myndband, verkefni eða æfingum og námskeiðum er streymt til neytenda. Fagna samtökin þessum lausnum og telja þau prýðileg fyrir þá sem þær vilja og geta þegið.
Þetta hentar þó ekki öllum. Sum námskeið eru einfaldlega þannig að neytandi telur sig ekki vera að fá það sem hann samdi um og greiddi fyrir. Þegar þannig háttar eiga neytendur í mörgum tilfellum rétt á því að fá hlutfallslega endurgreiðslu þ.e. fyrir þá tíma er námskeiðshaldari getur ekki efnt. Að gefnu tilefni skal tekið fram að krafa um hlutfallslega endurgreiðslu er ekki krafa um skaðabætur.
Það er öllum í hag að ná saman um niðurstöðu sem gagnast bæði iðkendum og íþróttahreyfingunni. Ef boð hreyfingarinnar um framlengingu æfingatímabils og fjarkennslu hentar iðkendum, er bæði rétt og skynsamlegt að þiggja slíkt boð. Vilji eða geti iðkandi af einhverjum ástæðum ekki þegið boðið á hann í flestum tilfellum rétt á endurgreiðslu, amk þess hluta sem ekki var unnt að sinna vegna samkomubanns, nema að annað sé skýrt tekið fram í samningum milli iðkanda og íþrótta- eða ungmennafélags.
Neytendasamtökin hvetja aðila til að ná saman, og annast samtökin meðal annars milligöngu fyrir félagsmenn sína með það fyrir augum. En ef af einhverjum ástæðum það er ekki unnt, benda samtökin á að hægt er að fara með mál fyrir kærunefnd vöru og þjónustukaupa sem úrskurðar í ágreiningsmálum milli neytenda og seljenda um flestar gerðir samninga vegna kaupa á vöru eða þjónustu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?