• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 30. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fyrsta formlega aðgerðaáætlunin í þjónustu við fólk með heilabilun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun til ársins 2025. „Þetta er í fyrsta sinn sem sett er fram opinber stefna í þessum mikilvæga málaflokki hér á landi og löngu tímabært“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Aðgerðaáætlunin er afrakstur stefnumótunarvinnu sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól Jóni Snædal öldrunarlækni að leiða. Vinnan fór fram í víðtæku samráði við þjónustuveitendur, sjúklingahópinn og aðstandendur fólks með heilabilun. Einnig var horft til alþjóðlegra aðgerðaáætlana á borð við Global action plan on the public helath response to dementia 2017-2025 frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni; Evrópusamstarfs um Joint action on dementia og Norðurlandasamstarfs um heilabilun á vegum Nordens Välfärdscenter (NVC). Aðgerðaáætlunin er enn fremur sett fram með hliðsjón af heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Mótun stefnu á þessu sviði er í samræmi við ályktun Alþingis frá árinu 2017 þar sem heilbrigðisráðherra var falið að „móta stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun sem feli í sér vitundarvakningu og fræðslu til almennings og aðstandenda, aukna áherslu á öflun tölulegra upplýsinga, markvissar rannsóknir og átak til að auka gæði umönnunar fyrir ört stækkandi sjúklingahóp í samfélaginu“.
Áætlunin tekur til sex málefnasviða og í henni eru skilgreindar 48 aðgerðir sem hver um sig er með tiltekin mælanleg markmið. Nokkrum þessara aðgerða hefur þegar verið hrint í framkvæmd, þar sem farið var að vinna á grundvelli stefnumótunarvinnunnar fljótlega eftir að Jón Snædal skilaði vinnu sinni með ýtarlegri skýrslu. Allar þær aðgerðir sem fram koma í áætluninni eiga rætur í skýrslu Jóns og umsögnum sem um hana bárust í samráðsgátt.

Þau málefnasvið sem tekin eru fyrir í aðgerðaáætluninni eru:
  1. Sjálfsákvörðunarréttur, þátttaka sjúklinga og lagaleg umgjörð.
  2. Forvarnir.
  3. Tímanleg greining á heilabilun á réttum stað og eftirfylgni eftir greiningu.
  4. Virkni, sjálfshjálp og stuðningur.
  5. Rétt þjónusta miðað við stig heilabilunar.
  6. Umfang, rannsóknir, þekking og hæfni.

Undir hverju málefnasviði eru birtar áherslur ráðherra, þær aðgerðir sem ákveðið hefur verið að ráðast í, áhrif þeirra á samfélagið og framtíðarsýn.

  • Aðgerðaáætlunin
  • Skýrsla Jóns Snædal
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Málþóf stjórnarandstöðunnar enn á ný vegna sérhagsmuna

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Reimar Pétursson og Matthías G. Pálsson skipaðir í embætti við Endurupptökudóm

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?