• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Efling fagnar langþráðum sigri í kjarabaráttu við sveitarfélögin

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. maí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Samninganefnd Eflingar undirritaði kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga þar sem kveðið er á um hækkun lægstu launa með sérstakri aukagreiðslu að fyrirmynd kjarasamnings Eflingar við Reykjavíkurborg. Efling fagnar með þessu sigri í langvinnri og erfiðri kjarabaráttu við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd félagsmanna sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Sveitarfélaginu Ölfusi og Hveragerðisbæ.
Með aukagreiðslunni hefur náðst fram sambærileg kjarabót og í samningum félagsins við ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir. Þessar kjarabætur fyrir láglaunafólk hjá sveitarfélögunum, að stórum hluta konur í umönnunarstörfum, er beinn árangur af verkfallsaðgerðum og staðfastri baráttu félagsmanna á Höfuðborgarsvæðinu öllu síðan í byrjun febrúar.
Önnur meginatriði samningsins eru samtals 90 þúsund króna hækkun grunnlauna í grunnþrepi yfir samningstímann, stytting vinnuvikunnar, 61 þúsund króna árlegt framlag í nýjan félagsmannasjóð og fleira.
„Í enn eitt skiptið hefur Eflingarfólk í minnst metnu störfum samfélagsins sýnt að jafnvel grimmustu stofnanir valdsins eiga ekki roð við þeim þegar þau koma fram baráttuglöð og sameinuð. Í enn eitt skiptið hafa þau sannað að réttlát og staðföst barátta láglaunafólks í gegnum sitt stéttarfélag er ekki bara réttur okkar heldur skilar hún líka raunverulegum árangi,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
„Ég vil líka benda á hversu mikilvæg skilaboð félagsmenn okkar senda inn í samfélagsástandið með þessum árangri. Ef einhver hélt að kórónaveirufaraldurinn og efnahagslægðin sem honum fylgir yrði átylla til að skerða kjör láglaunafólks og berja niður í þeim baráttuandann, þá hafa félagsmenn okkar hjá sveitarfélögunum sýnt að það er ansi stór misskilningur. Baráttan fyrir réttlátu samfélagi er lifandi og hefur aldrei skipt meira máli en einmitt núna,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar við undirritun samningsins.
Kjaradeila Eflingar við sveitarfélögin fór fram undir afar óvenjulegum kringumstæðum, en ólíkt ríkinu og Reykjavíkurborg skirraðist Samband íslenskra sveitarfélaga við að ljúka samningum við Eflingu áður en kórónaveirufaraldurinn náði hámarki í marsmánuði. Frekar en að láta undan tók samninganefnd félagsmanna ákvörðun um tímabundna frestun verkfalls. Verkfalli sem hófst 9. mars og hafði verið samþykkt með 90% greiddra atkvæða og tæplega helmings þátttöku var því frestað þann 24. mars.
Eftir páska gengu félagsmenn í annað sinn til atkvæðagreiðslu um verkfall. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var mun meiri en í fyrri atkvæðagreiðslu eða 65% félagsmanna og samþykktu tæp 90% þeirra verkfallsboðunina. Verkfall hófst þriðjudaginn 5. maí og skapaðist með því mikill þrýstingur á sveitarfélögin, ekki síst vegna lokana í grunnskólum.
Samningur er undirritaður með fyrirvara um samþykki þeirra 270 félagsmanna sem undir honum munu starfa. Hefst nú vinna við kynningu samningsins og undirbúning atkvæðagreiðslu.
Verkfalli Eflingar gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga er með þessu aflýst og ganga félagsmenn til starfa með venjubundnum hætti samkvæmt gildandi ráðningarsamningum og kjarasamningi frá og með morgundeginum (11. maí).

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    75 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Eftirlýst kona handtekin

    94 deilingar
    Share 38 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?