• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Seðlabankinn lækkar vexti í eitt prósent – Mikið svigrúm fyrir bankana að lækka vexti verulega

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. maí 2020
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1%.
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í maíhefti Peningamála eru horfur á 8% samdrætti landsframleiðslu í ár. Þar vegur þyngst yfir 80% fækkun í komum ferðamanna til landsins. Útlit er fyrir að atvinnuleysi aukist mikið og fari í um 12% á þriðja fjórðungi ársins en verði tæplega 9% á árinu öllu. Samkvæmt spá bankans taka efnahagsumsvif smám saman að færast í eðlilegt horf á seinni hluta þessa árs og spáð er tæplega 5% hagvexti á næsta ári. Óvissan er hins vegar óvenju mikil og þróun efnahagsmála mun ráðast af framvindu farsóttarinnar og því hvernig tekst til við að vinda ofan af sóttvarnaraðgerðum.
Verðbólga mældist 2,2% í apríl og hefur verið undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans frá því í desember sl. Gengi krónunnar hefur lækkað frá því að farsóttin barst til landsins en á móti vega mikil lækkun olíuverðs og lækkun matvæla- og hrávöruverðs. Þá hafa verðbólguvæntingar lítið breyst og kjölfesta þeirra í verðbólgumarkmiði bankans virðist traust. Samkvæmt spá Seðlabankans eykst verðbólga lítillega á næstu mánuðum vegna áhrifa gengislækkunar krónunnar. Aukinn slaki í þjóðarbúinu mun hins vegar vega þyngra þegar líða tekur á þetta ár og horfur eru á að verðbólga verði undir 2% á seinni hluta spátímans.  Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga hefur gert peningastefnunefnd kleift að bregðast við versnandi efnahagshorfum með afgerandi hætti. Lægri vextir og aðrar aðgerðir bankans munu styðja við efnahagsbata og stuðla að því að hann verði hraðari en ella. Þá hafa aðgerðir í ríkisfjármálum lagst á sömu sveif.
Peningastefnunefnd mun áfram fylgjast grannt með framvindu efnahagsmála og nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóðarbúskapinn og tryggja að lausara taumhald peningastefnunnar miðlist með eðlilegum hætti til heimila og fyrirtækja.
https://gamli.frettatiminn.is/rikisstjornin-verdur-ad-skipa-bonkunum-ad-laekka-vexti/
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?