Einn heppinn áskrifandi hlaut fyrsta vinninginn í Lottóinu í gærkvöld og fær rúmlega 49 milljónir króna í sinn hlut. Þá var einn miðahafi með bónusvinninginn og fær rúmlega 752 þúsund krónur en sá keypti miðann einnig á lotto.is.
Sex miðahafar voru svo með 2. vinning í Jóker í kvöld og fær hver þeirra 100 þúsund krónur fyrir. Fjórir miðahafanna voru í áskrift, einn keypti miðann á N1 Fossvogi og einn í Krambúðinni, Mávahlíð. Hægt er að gerast áskrifandi á lotto.is
Umræða