Hækkum atvinnuleysisbætur og lengjum bótatímabilið! – Ríkið stytti bótatímabilið um hálft ár
Kórónuveirufaraldurinn hefur valdið miklum samdrætti í íslensku efnahagslífi og atvinnuleysi hefur rokið upp. Spáð er áframhaldandi þrengingum á vinnumarkaði og að atvinnuleysi muni enn vaxa á haustmánuðum.
Á þessum erfiðu tímum skiptir miklu máli að fólk sem missir vinnuna geti treyst á öflugar atvinnuleysistryggingar. ASÍ, BSRB og BHM telja að verulega vanti upp á að kerfið sé það öryggisnet sem það þarf að vera.
Skortur á afkomuöryggi getur haft miklar langtímaafleiðingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem er jafnframt mjög dýrkeypt samfélagslega. Tekjufall einstaklinga hefur dómínó-áhrif á hagkerfið í heild sinni og getur leitt til þess að kreppan verður dýpri og langvinnari en ella.ASÍ, BSRB og BHM skora á stjórnvöld að hækka grunnbætur og lengja bótatímabilið. Einnig að tekjutengdar bætur hækki og tímabil tekjutengingar verði lengt.
Samhliða verði tryggt fullnægjandi fjármagn til að halda úti vinnumarkaðsaðgerðum með þjónustu, stuðningi og námstækifærum fyrir atvinnuleitendur en slíkt er lykilatriði til að draga úr neikvæðum afleiðingum atvinnumissis fyrir einstaklinga og til að styrkja atvinnulíf og efnahag til framtíðar.Virkjum öryggisnetið til að tryggja að kreppan verði ekki dýpri og skaðlegri en hún þarf að vera. Atvinnuleysistryggingar eru réttindi sem launafólk hefur áunnið sér. Þær skapa öryggisnetið sem heldur samfélaginu saman.
https://gamli.frettatiminn.is/03/11/2020/hja-mer-og-minum-verda-engin-jol/