Píeta samtökin, í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og samstarfsaðila í Litháen og á Írlandi, fengu nýlega 25 milljóna króna styrk í gegnum Erasmus+ menntaáætlun ESB til þess að yfirfæra og þróa áfram námsefni og reynsluprófa námskeið fyrir 13-14 ára ungmenni. Verkefnið hófst formlega í nóvember sl.
Verkefninu “Building Resilience and Brighter Futures” (BUILD) er ætlað að veita ungmennum, sem mörg hver upplifa sjálfsvígshugsanir eða sjálfskaða, verkfæri til að takast á við ólíkar áskoranir í lífinu, byggja upp þrautseigju og seiglu og efla sjálfstraust og tilfinningafærni. Nemendum í 8. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og í Kaunas í Litháen verður boðið upp á 6. vikna forvarnarnámskeið. Vonir standa til að hægt verði að bjóða námskeiðið öðrum sveitarfélögum til kennslu á næsta ári.
“Hafnarfjörður er heilsueflandi samfélag og leiðandi meðal sveitarfélaga í uppbyggingu forvarnartengdrar þjónustu fyrir börn og ungmenni. BRÚIN, þverfaglegt samstarfsverkefni innan sveitarfélagsins, byggir á snemmtækri íhlutun á fjölþættan hátt í líf barns. BUILD forvarnarverkefnið fellur vel að þessum áherslum og er til þess fallið að mæta þörfum ungmenna fyrir samtal og stuðning á mikilvægum mótunarárum,” segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
“Píeta samtökin eru sjálfsvígs- og sjálfsskaða forvarnarsamtök og leiðandi í forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum á Íslandi. BUILD verkefnið er mjög mikilvægur liður í forvarnarstefnu samtakanna en til þessa hafa samtökin einungis sinnt einstaklingum 18 ára og eldri. Við erum meðvituð um að forvarnarstarf þarf að byrja fyrr og um mikilvægi þess að kenna börnum og ungmönnum að takast á við erfiðar tilfinningar og andlegar áskoranir. Við höfum mikla trú á því að BUILD verkefnið muni hafa mikil áhrif og þakklát Hafnarfjarðarbæ fyrir að ráðast í það með okkur,” segir Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Píeta samtakanna.
Sjálfsvíg og sjálfsskaði skilgreint sem alþjóðlegt heilbrigðisvandamál
Sjálfsvíg og sjálfsskaði ungmenna er flókið viðfangsefni og Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur skilgreint sjálfsvíg og sjálfsskaða ungmenna sem alþjóðlegt heilbrigðisvandamál. Í nýlegri skýrslu samtakanna kemur fram að sjálfsvíg eru þriðja algengasta orsök dauðsfalla meðal 15-19 ára ungmenna og rúmlega helmingur þeirra sem glíma við andleg vandamál byrja að finna fyrir þeim um 14 ára aldur. Nýleg gögn sýna að sjálfsvíg meðal ungmenna 15-19 ára er hæst í Litháen meðal aðildarríkja OECD eða 13 á hverja 100.000 íbúa (2017, engar tölur fyrir Ísland) en sjálfvíg ungmenna á Íslandi árin 2015-2019 voru 13,6 á hverja 100.000 íbúa (Landlæknir).
Geðheilsuefling og forvarnir skipta lykilmáli
Afleiðingar þess að takast ekki á við andlega vanlíðan ungmenna getur orsakað andlega vanheilsu á fullorðinsárum og takmörkun lífsgæða. Geðheilsuefling og forvarnaraðgerðir sem miða að því að styrkja getu barna og ungmenna til að stjórna tilfinningum, sporna við áhættuhegðun, byggja upp þrautseigju og seiglu til að takast á við erfiðar aðstæður og mótlæti, sinna sjálfshjálp og tryggja aðgengi að aðstoð og þjónustu, skipta lykilmáli.
Samanber niðurstöður starfshóps um sjálfsvígsforvarnir frá 2018 er skólasamfélagið ákjósanlegasti vettvangurinn til að ná til sem flestra barna og ungmenna með geðrækt og forvarnir og lagt er til að sjálfsvígsforvörnum verði komið á í elstu bekkjum grunnskóla. BUILD verkefnið svarar því kalli.