• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Dómarar skipaðir í Endurupptökudóm

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. febrúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Með lögum nr. 47/2020, sem tóku gildi þann 1. desember sl., var Endurupptökudómi komið á fót, en Endurupptökudómur er sérdómstóll sem tekur ákvörðun um hvort heimila eigi endurupptöku dómsmála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti.

Í Endurupptökudómi sitja fimm dómendur, einn frá hverju dómstigi og tveir aðrir sem ekki eru embættisdómarar, en skipað er í þessar tvær stöður að undangenginni auglýsingu og umsögn dómnefndar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti. Varamenn eru jafnmargir og skipaðir á sama hátt. Sá hæstaréttardómari sem skipaður er í dóminn er jafnframt forseti hans.

Skipunartími er fimm ár, en þó þannig að skipunartími eins manns rennur út hvert ár. Þegar skipað er í fyrsta sinn í dóminn ræður tilviljun lengd skipunartíma. Í samræmi við þetta hefur dómsmálaráðherra skipað fimm dómendur og fimm varadómendur í Endurupptökudóm. Þeir eru:

Dómendur:

  • Karl Axelsson, dómari við Hæstarétt Íslands, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2022.
  • Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2023.
  • Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Landsrétt, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2024.
  • Hólmfríður Grímsdóttir, héraðsdómari, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2025.
  • Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2026.

Varadómendur:

  • Ingveldur Einarsdóttir, dómari við Hæstarétt Íslands, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2022.
  • Stefán Geir Þórisson, lögmaður, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2023.
  • Aðalsteinn E. Jónasson, dómari við Landsrétt, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2024.
  • Helgi Sigurðsson, héraðsdómari, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2025.
  • Eiríkur Elís Þorláksson, dósent, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2026.

Endurupptökudómur hefur aðsetur hjá dómstólasýslunni að Suðurlandsbraut 14 í Reykjavík.

https://gamli.frettatiminn.is/01/12/2020/yfirdeild-mannrettindadomstols-evropu-stadesti-dom-rettarins-i-landsrettarmalinu/

Umræða
Share2Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

    Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Kona handtekin fyrir líkamsárás

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
  • LEB telur gliðnun á milli launa og grunnlífeyris vera með öllu óþolandi

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?