• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 9. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ráðherra staðfestir reglugerð um stofnun og rekstur neyslurýma

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. febrúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð um stofnun og rekstur neyslurýma. Reglugerðin er sett með ákvæði til bráðabirgða sem gerir verkefninu Frú Ragnheiði, sem Rauði krossinn í Reykjavík rekur, kleift að nýta annan af tveimur bílum Frú Ragnheiðar tímabundið sem neyslurými þar til varanlegt rými samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar hefur verið opnað.

Heimild til reksturs neyslurýma var leidd í lög með breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem samþykkt var á Alþingi á liðnu ári en þau skulu rekin með skaðaminnkun að leiðarljósi. Markmið reglugerðarinnar er að setja ramma um rekstur þeirra og starfsemi en samkvæmt skilgreiningu er neyslurými; „lagalega verndað umhverfi þar sem neytendur sem eru 18 ára og eldri geta sprautað ávana- og fíkniefnum í æð undir eftirliti starfsfólks og gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna.“

Rekstur neyslurýma verður á hendi sveitarfélaga. Forsenda fyrir rekstrinum er að embætti landlæknis hafi veitt hlutaðeigandi sveitarfélagi leyfi til að stofna og reka slíkt rými að fenginni umsókn. Í reglugerð heilbrigðisráðherra er kveðið á um þau skilyrði sem húsnæði neyslurýmis og rekstur þess þarf að uppfylla, auk tilvísana í lög og reglugerðir sem einnig varða slíkan rekstur.

Samkvæmt reglugerðinni skal sveitarfélag sem rekur neyslurými veita embætti landlæknis upplýsingar um reksturinn með ársskýrslu, s.s. um staðsetningu þess, umfang þjónustunnar, fjölda, aldur, kyn og búsetu skráðra notenda, fjölda skipta sem lyf við ofskömmtun á ávana- og fíkniefnum hefur verið notað og fleiri atriði sem tilgreind eru í reglugerðinni.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum og öðlast gildi við birtingu.

Umræða
Share11Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Netsvindl, fjárkúgun og fleira

    Laus hundur veittist að barni

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • „Bankinn stjórnar lífi þínu“ – margir viðskiptavinir reiðir vegna eftirlits bankanna

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Öskraði úti á svölum og sprautaði úr slökkvitæki á lögreglumenn

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?