• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hlutabréf í Síldarvinnslunni seldust á 29,7 milljarða – 25 milljarðar til Samherja og Kjálkaness

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. maí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Síldarvinnslan skilaði 5,3 milljarða króna hagnaði í fyrra, þrátt fyrir að loðnuvertíðin hafi brugðist

Stærstu hlutirnir sem verða seldir eru í eigu Samherja og Kjálkaness, félags í eigu Björgólfs Jóhannssonar f.v. forstjóra Samherja auk annarra. Hlutafjárútboðið mun færa hvoru félagi a.m.k. rúma 12 milljarða í sinn hlut. Samkvæmt arðgreiðslustefnu Síldarvinnslunnar er stefnt að því að arður nemi að lágmarki 30 prósentum hagnaðar næstliðins rekstrarárs. Ekki var greiddur út arður í ár en miðað við hagnaðinn í fyrra hefðu arðgreiðslur samkvæmt þessu verið að minnsta kosti 1,6 milljarðar króna.

Rúmlega tvöföld eftirspurn í hlutafjárútboði Síldarvinnslunnar hf.

Vel heppnuðu almennu hlutafjárútboði Síldarvinnslunnar lauk klukkan 16:00 þann 12. maí 2021.

Útgefið hlutafé í Síldarvinnslunni nemur 1.700 milljónum hluta. Í útboðinu voru boðnir til sölu 447,6 milljónir hluta af áður útgefnum hlutum. Rúmlega tvöföld eftirspurn var frá bæði almenningi og fagfjárfestum og nýttu seljendur sér heimild til að fjölga seldum hlutum í útboðinu um 51 milljón hluta. Seljendur samþykktu áskriftir fyrir 498,6 milljónir hluta eða 29,3% af hlutafé félagsins. Ráðgjafi Síldarvinnslunnar er Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans.

  • Nær 6.500 áskriftir bárust fyrir um 60 milljarða króna.
  • Í tilboðsbók A var endanlegt útboðsgengi 58 krónur á hlut. Áskriftir á útboðsgengi í tilboðsbók A eru ekki skertar undir 1 milljón króna að kaupverði. Skerðing áskrifta á útboðsgengi í tilboðsbók A er að öðru leyti hlutfallsleg.
  • Í tilboðsbók B var endanlegt útboðsgengi 60 krónur á hlut. Skerðing áskrifta var í samræmi við skilmála útboðsins. Fjárfestar sem tilgreindu lægra útboðsgengi fengu ekki úthlutað.
  • Söluandvirði nam 29,7 milljörðum króna.

Fjöldi hluthafa í Síldarvinnslunni verður tæplega 7.000 í kjölfar útboðsins.

Þátttakendur í útboðinu geta nálgast upplýsingar um úthlutun í útboðinu, eigi síðar en í lok dags 14. maí 2021 með því að fara inn á áskriftarvef útboðsins á vefsíðu Landsbankans hf., landsbankinn.is/sildarvinnslan, og nota sömu aðgangsauðkenni og þeir notuðu til að skrá áskrift sína í útboðinu.

Gjalddagi og eindagi áskriftarloforða í útboðinu er 20. maí 2021 og er áætlað að afhenda kaupendum hluti í Síldarvinnslunni þann 26. maí 2021 að undangenginni greiðslu.

Áætlað er að viðskipti með hlutabréf í Síldarvinnslunni hefjist 27. maí 2021 en Nasdaq Iceland mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með hlutabréfin með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf.:  

„Það er virkilega ánægjulegt að sjá áhuga almennings og fagfjárfesta á sjávarútvegi sem kristallast í niðurstöðum útboðsins. Ég vil bjóða nýja hluthafa velkomna í Síldarvinnsluna og þakka það mikla traust sem þeir hafa sýnt félaginu og starfsfólki þess. Með fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöll verður Síldarvinnslan með þá sérstöðu að vera eina skráða félagið með höfuðstöðvar á landsbyggðinni.“

https://gamli.frettatiminn.is/07/05/2021/sildarvinnslan-med-thjodaraudlind-sett-a-markad-almenningur-i-neti-utgerdarfyrirtaekja/

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kortisólskortur drepur – sterar bæla kortisól, segir Helga Ágústa innkirtlalæknir

    Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    103 deilingar
    Share 41 Tweet 26
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?