• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 29. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sundrung á hægri vængnum – Miðflokkurinn keppinautur Sjálfstæðisflokksins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. apríl 2018
in Óflokkað
A A
0

Sundrung á hægri vængnum

,,Þótt Miðflokkurinn sé fyrst og fremst klofningsbrot úr Framsóknarflokknum fer ekki á milli mála að hann er orðinn einn af keppinautum Sjálfstæðisflokksins um fylgi ákveðinna kjósendahópa.“ segir Styrmir Gunnarsson f.v. ritstjóri Morgunblaðsins.

Getur verið að eitt helzta vandamál Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í vor verði einfaldlega sundrung á hægri vængnum?
Viðreisn er auðvitað fyrst og fremst klofningsbrot úr Sjálfstæðisflokknum en athygli vekur að framboðslisti Flokks fólksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavíkur byggir að einhverju leyti á fólki sem á sér sögu í starfi á vettvangi Sjálfstæðisflokksins.
Þótt Miðflokkurinn sé fyrst og fremst klofningsbrot úr Framsóknarflokknum fer ekki á milli mála að hann er orðinn einn af keppinautum Sjálfstæðisflokksins um fylgi ákveðinna kjósendahópa.
Að auki er svo til kominn nýr listi, Höfuðborgarlistinn, sem líklegur er til að blanda sér í baráttuna um áþekka kjósendahópa.
Þarna eru fjórir flokkar og framboðslistar, sem sækja að einhverju leyti á sömu kjósendamið og Sjálfstæðisflokkurinn.
Þetta þýðir að til þess að ná verulegum árangri í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík þurfa frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins að ná til þessara kjósenda.
Og um leið vaknar sú spurning hvers vegna einhver hluti þess fólks sem skipar þessa fjóra framboðslista í Reykjavík hefur yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn.
Svipuð staða kann að vera fyrir hendi í sumum nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Miðflokkurinn hefur kynnt til sögunnar sterkan frambjóðanda í Kópavogi. Einhverjir hópar úr Bjartri Framtíð hafa náð saman við Viðreisn í nágrannasveitarfélögunum.
Þetta er flóknari staða en oftast áður á hægri vængnum en augljóst að veruleg fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins, eigi hún að verða að veruleika, hlýtur að þurfa að koma frá kjósendahópum, sem þeir flokkar og framboð, sem hér hefur verið vísað til munu sækja í. segir Styrmir Gunnarsson í pistli sínum.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stakk þrjá með hnífi í borginni

    Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    74 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • ,,Pabbi þinn er vondur og hættulegur“ – ,,Èg elska þig pabbi“

    104 deilingar
    Share 42 Tweet 26
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?