• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Yfirlýsing lögreglu vegna handtöku í Bæjarhrauni

Lögregla beitir ekki rafbyssum undir neinum kringumstæðum enda hefur hún ekki heimild til að beita slíkum tækjum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Í ljósi umfjöllunar fjölmiðla í dag um handtöku sem átti sér stað í Bæjarhrauni í gær þá telur embætti ríkislögreglustjóra rétt að taka eftirfarandi fram um almenna framkvæmd lögreglu:

Þegar lögregla þarf að fylgja eftir beiðnum um brottvísun úr landi eða frávísun þá er sú framkvæmd oft og tíðum þungbær og flókin, bæði fyrir þann sem fyrir henni verður og þann sem þarf að framfylgja henni. Valdbeitingarheimildir eru ekki nýttar í slíkum tilvikum nema brýna nauðsyn krefji en lögregla forðast almennt valdbeitingu við handtökur.

Þegar þess gerist þörf þá er það ávallt samkvæmt mati stjórnanda á vettvangi. Leitast er við að beita vægustu mögulegu aðferðum en starfsfólk lögreglu er þrautþjálfað til að takast á við slíkar aðstæður og forðast að af þeim skapist meiðsl.

Lögregla beitir ekki rafbyssum undir neinum kringumstæðum enda hefur hún ekki heimild til að beita slíkum tækjum. Þá sprautar lögregla aldrei einstaklinga, slíkt er ávallt í höndum heilbrigðisstarfsmanna, sem taka slíka ákvörðun sjálfstætt í ljósi aðstæðna hverju sinni.

Hafa verður það í huga að lögreglu ber að framfylgja lögum eftir að einstaklingar hafa fullnýtt þann rétt sem þeir hafa til að kæra stjórnvaldsákvarðanir og eru slíkar aðgerðir aldrei fyrirvaralausar. Þá er einstaklingum nær undantekningarlaust gefið færi á að yfirgefa landið sjálfviljugir áður en farið er í aðgerðir sem til komnar eru vegna ákvarðana sem íslensk stjórnvöld hafa tekið s.s. vegna ólöglegrar dvalar í landinu.

Áréttað skal að ekki er unnt að veita upplýsingar um einstök mál þó að lögregla hafi á því skilning að aðgerðir sem þessar veki spurningar. Unnið er að því að tryggja og yfirfara öll tiltæk gögn málsins, komi til þess að kæra eða kvörtun berist vegna umræddrar aðgerðar. Að öðru leyti mun embætti ríkislögreglustjóra ekki veita nánari upplýsingar um málið að sinni.

Umræða
Share66Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?