Bruni í Garðabæ – vettvangsvinnu lögreglu lokið
Lögreglan hefur lokið vettvangsvinnu í iðnaðarhúsnæðinu við Miðhrauni 4 í Garðabæ, en eldsupptakastaður brunans sl. fimmtudag var við eldvegg í miðrými hússins, í lagerrými Icewear.
Fram undan er frekari vinna við rannsókn á haldlögðum gögnum og því er ekki hægt að veita upplýsingar um eldsupptök að svo stöddu.
Við rannsóknina hefur lögreglan notið góðrar aðstoðar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Mannvirkjastofnunar.
Blaðamaður Fréttatímans var kominn á staðinn á sama tíma og lögreglan og á undan slökkviliði og hægt er að sjá frekari fréttir af eldsvoðanum hér að neðan:
https://gamli.frettatiminn.is/2018/05/04/storbruni-i-gardabae/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/06/04/bruninn-i-gardabae/
https://gamli.frettatiminn.is/2018/06/04/rannsokn-brunanum-gardabae/