Grunur leikur á um að skipverjar í áhöfn Kap VE II séu smitaðir af kórónuveirunni.
Fram kemur á vef Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum sem gerir skipið út að Kap hafi verið á veiðum þegar grunsemdir vöknuðu um veirusmit. Var þá haldið til hafnar á Grundarfirði og voru þar tekin sýni í morgun.
,,Vísbendingar eru um COVID-smit í áhöfn Kap II VE-7 og þess vænst að niðurstöður skimunar leiði í ljós síðar í dag eða í kvöld hvort veikindin skýrist af veirunni eða einhverju öðru. Skipið var að veiðum þegar grundsemdir vöknuðu um veirusmitið. Það kom til Grundarfjarðar í morgun og tekin voru sýni sem fá flýtimeðferð í rannsókn.
Áhöfnin er í sóttkví um borð og verður ekki landað úr skipinu á meðan beðið er niðurstöðu skimunar. Alls átta manns í áhöfn Kap II VE-7 hafa einhver veikindaeinkenni en mismikil og líðan þeirra er sögð bærileg. Fimm hafa engum einkennum lýst.“