Nató, Schengen og Evrópumálin ekki á dagskrá hjá ríkisstjórninni segir Ásmundur Einar Daðason
Egill Helgason sá um Silfrið í dag og gestir hans voru þau Svandís Svavarsdóttir, Vinstri græn, Guðmundur Franklín Jónsson, Frjálslynda lýðræðisflokknum, Ásmundur Einar Daðason Framsóknarflokknum, Magnús Davíð Norðdahl Pírötum, Fjóla Hrund Björnsdóttir, Miðflokknum og Ásthildur Lóa Þórsdóttir Flokki fólksins.
Rætt var um schengen og Egill spurði Ásthildi Lóu frá Flokki fólksins hvort hún upplifði skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi og ekki stóð á svari hennar.
,,Ég hef ekki orðið fyrir henni nema varðandi bankana, þeir eru með skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi og ég hef upplifað hana á eigin skinni. Það er eina glæpastarfsemin sem ég hef orðið vör við á Íslandi“ Þá benti hún á hundruði milljarða hagnað ríkisbankanna vegna ,,okurlána“
Guðmundur Franklín tók í sama streng og sagði stjórnmálaflokkana einnig stunda glæpastarfsemi með því að skaffa sjálfum sér milljarða af almannafé í sína sjóði með sjálftöku.
Þá kom það fram í máli Ásmundar Einars Daðasonar, Framsóknarflokki að Nató, Schengen og Evrópumálin væru ekki á dagskrá hjá ríkisstjórninni.
Almenn ánægja var með hvernig til tókst með aðgerðir gegn Covid-19 en að sama skapi var bent á að heilbirgðisþjónusta væri í molum og t.d. þyrftu konur í Vestmannaeyjum að koma til Reykjavíkur til að fæða börn.