• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samstarfssamningur um uppbyggingu heilsubyggðar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. október 2021
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Garðabær og Arnarland ehf. hafa undirritað samstarfssamning um uppbyggingu heilsubyggðar á Arnarneshálsi. Þar verður lögð áhersla á lífsgæði, lýðheilsu, náttúru og heilsueflandi þjónustu. Verkefnið hefur hlotið nafnið Arnarland og er umrætt svæði u.þ.b. 10 ha að stærð. Það er staðsett á norðanverðum Arnarneshálsi og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi og Fífuhvammsvegi, við bæjarmörk Garðabæjar og Kópavogs.

 Byggðin mun samanstanda af rúmgóðum hágæðaíbúðum sem bjóða upp á möguleika á hátæknivæðingu fyrir 50 ára og eldri ásamt miðstöð fyrirtækja sem sérhæfa sig í heilbrigðisþjónustu, þróun og nýsköpun í heilsueflandi starfsemi.

 Framundan er skipulagsvinna á svæðinu sem felur í sér breytingar á aðalskipulagi sem og gerð deiliskipulags. Sú vinna verður unnin í nánu samstarfi við helstu hagsmunaaðila til að tryggja að ávinningur verði sem mestur fyrir tilvonandi íbúa, atvinnustarfsemi og nærumhverfi. Þá mun hönnun hverfisins taka mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og leitast verður við að skapa vandað bæjarumhverfi.

 „Hugmyndafræði nýrrar heilsubyggðar í Arnarlandi er í takt við það markmið Garðabæjar að vera heilsueflandi samfélag. Með því að samtvinna vandaðar íbúðir og heilsueflandi starfsemi tekst okkur að mæta þörfum íbúa Garðabæjar sem og að styðja við þá nýsköpun sem getur átt sér stað í þessu umhverfi. Svæðið í kring býður upp á mikla möguleika og ég hlakka til að sjá líf færast á þennan fallega stað,” segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

 Umrætt landsvæði hefur hingað til verið í eigu Landeyjar, dótturfélags Arion banka frá árinu 2016, en hefur nú verið fært í nýtt félag undir nafninu Arnarland ehf. Þorgerður Arna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Landeyjar, segir það afar ánægjulegt að þetta fallega landsvæði, sem er einstaklega vel staðsett við miðju höfuðborgarsvæðisins, fái það hlutverk að hýsa heilsubyggð í framtíðinni.

 „Að okkar mati skortir vandaðar og rúmgóðar íbúðir fyrir fólk sem vill minnka við sig þegar ungarnir fljúga úr hreiðrinu. Í hverfinu verður lögð áhersla á að íbúar geti ræktað líkama og sál í fallegu og nærandi umhverfi og sótt alla nauðsynlega þjónustu innan hverfisins“, segir Þorgerður.

 Félagið Ósar mun reisa framtíðarhöfuðstöðvar sínar á svæðinu og vera leiðandi í uppbyggingu á atvinnuhluta byggðarinnar. Ósar er móðurfélag fyrirtækjanna Icepharma og Parlogis sem bæði eiga yfir 100 ára sögu í markaðssetningu og dreifingu heilbrigðisvara á Íslandi.

 „Við væntum þess að á svæðinu verði til klasi fyrirtækja sem sérhæfa sig í heilsueflandi starfsemi á borð við heilsugæslu, sérfræðiþjónustu, heilsurækt, veitingarekstur o.fl. Fyrirtækin og íbúðabyggðin munu njóta góðs af nærveru hvors annars ásamt því að auka heilsutengt þjónustuframboð til nærliggjandi hverfa“, segir Hálfdan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Parlogis, sem mun leiða uppbyggingu á atvinnuhluta landsins fyrir hönd Ósa.

 Nánari upplýsingar um verkefnið má sjá á www.arnarland.is Upplýsingar veitir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar í s. 820 8541.

Meðfylgjandi eru myndir frá undirritun samstarfssamningsins. Þar voru samankomnir fulltrúar verkefnisins. 

Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar, Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Hálfdan Guðni Gunnarsson forstjóri Parlogis, Þorgerður Arna Einarsdóttir framkvæmdarstjóri Arnarlands, Kristján Jóhannsson stjórnarformaður Icepharma og Jóhann Ingi Kristjánsson stjórnarformaður Ósa og Arnarlands
Jóhann Ingi Kristjánsson og Gunnar Einarsson​.

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?