• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fundu verndandi arfgerð gegn riðuveiki í íslensku sauðfé

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Hin klassíska verndandi arfgerð gegn riðuveiki í sauðfé, ARR, hefur nú fundist í fyrsta sinn í íslenskri kind. Þetta er stórmerkur fundur, því hér er um að ræða arfgerð sem er alþjóðlega viðurkennd sem verndandi og unnið hefur verið með í löndum Evrópusambandsins við útrýmingu riðu með góðum árangri. Arfgerðin hefur aldrei áður fundist í sauðfé hérlendis þrátt fyrir víðtæka leit. Þessi fundur gefur miklar vonir um að fé með ARR arfgerðina geti fundist víðar á landinu.
Svandís Svavarsdóttir, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra:

„Þessar fréttir gefa fyrirheit um að eftir áratuga baráttu sé loksins komin leið til að vinna lokasigur á riðuveiki á Íslandi. Næstu skref eru að greina hversu útbreitt hin verndandi arfgerð er og með hvaða hætti megi nýta sér þessa nýju þekkingu í ræktunarstarfi.“

Síðastliðið vor var hleypt af stokkunum tveim rannsóknarverkefnum sem höfðu sama meginmarkmið –  að leita að verndandi arfgerðum gegn riðu í íslensku sauðfé.

Annars vegar eru það sérfræðingar á Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum og hins vegar sauðfjárbóndinn Karólína Elísabetardóttir ásamt erlendum vísindamönnum sem standa fyrir rannsóknunum. Þessi rannsóknaverkefni hlutu bæði styrk úr Þróunarsjóði sauðfjárræktarinnar sem er í umsjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Forsvarsmenn þessara verkefna mynduðu síðan teymi sem unnið hefur saman að leitinni.

Þegar raðgreind höfðu verið rúmlega 4.200 sýni, sem bæði tilheyra þessari rannsókn og öðrum verkefnum á síðustu 10 mánuðum gerðist hið óvænta, sex gripir fundust á Austurlandi sem bera arfgerðina ARR. Kindurnar eru allar á bænum Þernunesi í Reyðarfirði og eftir frekari rannsóknir fundust fjórir skyldir gripir til viðbótar á bænum sem bera þessa arfgerð. Kindur þessar eru kollóttar og rekja ættir sínar m.a í kollótta féð í Reykhólasveit og á Ströndum.

 

Þessi fundur gefur miklar vonir um að fé með ARR arfgerðina geti fundist víðar á landinu. Það kemur sér vel að um þessar mundir er að hefjast stórátak meðal bænda í riðuarfgerðargreiningum, þar sem áætlað er að ná a.m.k. upplýsingum um arfgerðir 15 þúsund gripa til viðbótar nú í vetur. Fyrir ræktunarstarfið verður áskorunin á næstu árum að koma ARR arfgerðinni sem hraðast inn í stofninn án þess að draga um of úr erfðafjölbreytileika hans, en um er að ræða langtíma uppbyggingarstarf. Vonir standa til að áframhaldandi leit í stofninum skila upplýsingum um fleiri gripi með þessa arfgerð.

Nánar má lesa um fundinn og arfgerðina á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins.

Umræða
Share25Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Alþingismanni hótað

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?