• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Landspítali er á neyðarstigi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Í gær lágu 33 sjúklingar með COVID á Landspítala. Þar af 23 í einangrun með virkt smit og 10 eru í bataferli. Í fyrradag bættust 3 við hópinn og 7 voru útskrifaðir. Á gjörgæslu eru 3 sjúklingar, tveir í öndunarvél og annar þeirra í ECMO (hjarta- og lungavél). Allir eru lausir úr einangrun. Andlát var á smitsjúkdómadeild þegar kona á níræðisaldri lést.

9.206 manns eru fjarþjónustu á COVID-19 göngudeild, þar af 3.259 börn. 219 starfsmenn eru fjarverandi vegna eingrunar en í gær greindust 22 og álíka stór hópur losnaði úr einangrun.

Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.

Sérstakar tilkynningar

1. Vísað er á skýringarmynd á covid.is sem sýnir myndrænt hvernig nýjar reglur um sóttkví virka, starfsmenn eru hvattir til að kynna sér þessar reglur vel en vera samt meðvitaðir um að reglur Landspítala gagnvart útsettum starfsmönnum eru óbreyttar og er ekki gerður greinarmunur á hvar fólk var útsett.  Farsóttanefnd vinnur nú að útfærslu reglna á Landspítala með hliðsjón af þessari framsetningu.

2. Varðandi fólk sem er í smitgát í samfélaginu þá gildir um það, eins og alltaf hefur gilt um fólk í sóttkví eða einangrun, að því er heimilt að sækja sér nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og ber þá meðferðaraðli ábyrgð á að taka á móti viðkomandi með viðeigandi hlífðarbúnaði. Ef hægt er að fresta komu fram yfir smitgátartímann þá er það kostur en ekki má fresta nauðsynlegum erindum.

3. Vakin er sérstök athygli á að frá og með 1. febrúar telst bólusetningarvottorð aðeins viðurkennt hafi ekki liðið meira en 270 dagar frá grunnbólusetningu í þeim tilvikum sem einstaklingur hefur ekki gengist undir örvunarbólusetningu. Þetta þýðir í raun að þeir sem ekki hafa fengið örvunarskammt nú þegar eru með bólusetningavottorð sem hafa einungis gildistíma í 9 mánuði frá seinni bólusetningu eða einni Janssen. Farsóttanefnd hvetur enn og aftur starfsmenn til að þiggja örvunarbólusetningu um leið og tilskilinn tíma er liðinn. Áfram er bóluett í Laugardalshöll alla virka daga frá kl. 10:00 til 15:00 og þarf ekki að hafa boð til að fara þangað.

4. Þá er áfram minnt á að vikulega er komið með bóluefni fyrir sjúklinga sem óska eftir 1., 2. eða 3 bólusetningu. Eina sem þarf að gera er að senda verkefnastjóra farsóttanefndar kennitölu viðkomandi í Heilsugáttarskilaboðum og þá munu sprautur skila sér að réttan stað. Fastir bólusetningadagar eru þriðjudagar en ef sérstakar aðstæður eru upp þá er sjálfsagt að skjótast með bóluefni á öðrum virkum dögum.

Umræða
Share2Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    219 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    52 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?