Nýtt kynningarefni um stafrænt kynferðisofbeldi í alla grunnsskóla
Fræðslu- og kynningarefni um stafrænt kynferðisofbeldi sent á allar unglingadeildir landsins
25% stúlkna á aldrinum 15-17 ára hafa verið þvingaðar til myndbirtinga
18% stúlkna á sama aldri hafa lent í myndbirtingu gegn vilja sínum
112 appið og heimasíðan 112.is – fyrir fræðslu og í neyðartilfellum
Allir grunnskólar með unglingadeild og skólaskrifstofur landsins fengu í dag senda kynningu fyrir 8. bekkinga gegn stafrænu ofbeldi og gildi samþykkis í stafrænum og kynferðislegum samskiptum ásamt kennsluleiðbeiningum fyrir kennara og upplýsingabréfi til foreldra barnanna á íslensku, ensku og pólsku.
Kynningin er aðgengileg á þessari slóð. Hún er hluti af fræðsluherferð ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar í samvinnu við lögregluembættin á landsvísu, Samband íslenskra sveitarfélaga og stýrihóp um framfylgd forvarnaráætlunar meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.
Mikil aukning í skráðum kynferðisbrotum gegn börnum
Í könnun Fjölmiðlanefndar kom fram að fjórðungur stúlkna á aldrinum 15-17 ára hefur verið þvingaður til myndsendinga og tæp 18% hafa lent í myndbirtingu gegn vilja sínum. Mikil fjölgun er á skráðum kynferðisbrotum gegn börnum, en fyrstu 10 mánuði ársins 2021 voru 61% brotaþola undir 18 ára í kynferðisbrotum í þeim málum þar sem aldur brotaþola var skráður.
Forvarnir mikilvægar í 8. bekk
Ástæða þess að valið var að beina fræðslunni að 8. bekk er að niðurstöður Rannsókna og greininga benda til þess að veruleg aukning verði í klámneyslu stráka í 9. bekk og þá aukist einnig þrýstingur á stelpur að deila kynferðislegu myndefni. Í 8. bekk eru nemendur almennt nógu gamlir til þess að nota samfélagsmiðla (viðmiðið er 13 ára) og líklegast er það einnig á þeim aldri sem unglingar á Íslandi fara að nota síma án fjölskyldustillinga. Þetta er því kjörinn aldur til þess að ræða við nemendur um ábyrgð í stafrænum samskiptum.
Tilkynna verður brot
Í fræðslunni er lögð áhersla á samþykki sem lykilatriði í öllum stafrænum samskiptum og að það má ekki útbúa eða dreifa viðkvæmu efni stafrænt nema með samþykki. Þá er líka lögð áhersla á að við berum ábyrgð á því sem við gerum á netinu, þó að ábyrgðin sé mismunandi eftir því á hvaða aldri við erum. Það er margs konar ábyrgð, ekki aðeins refsiábyrgð.
Ef það eru fullorðnir sem senda börnum (undir 18 ára) nektarmynd þá er það alltaf ólöglegt og þarf að tilkynna til lögreglunnar með því að hafa samband við 112.
112 appið
Nemendur, aðstandendur þeirra og starfsfólk skóla eru einnig hvött til þess að hlaða niður nýju og endurbættu appi 112. Það er bæði til fyrir Android og iPhone. Appinu er ætlað að auðvelda öllum, sérstaklega ungu fólki, að tilkynna atvik til neyðarvarðar sem kemur tilkynningum áfram til barnaverndar eða lögreglu eftir því sem við á.
Áfram verður hægt að hringja í 112 og á vef 112 er einnig hægt að tilkynna um brot eða óska eftir aðstoð vegna brota gegn börnum.
- Leiðbeiningar fyrir kennara og skólafólk
- Upplýsingar til foreldra og forráðamenn
- Information for parents and guardians
- INFORMACJE DLA RODZICÓW I OPIEKUNÓW