• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gistinætur rúmlega fjórfölduðust á milli ára

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. febrúar 2022
in Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Í janúar síðastliðnum voru gistinætur á skráðum gististöðum 241.200 samanborið við 56.800 árið áður. Íslenskar gistinætur voru um 27% gistinátta eða um 64.900 og þær erlendu um 176.300 (73%). Íslensku gistinæturnar jukust um 46,7% á milli ára en þær erlendu fjórtánfölduðust.

Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 182.700 (þar af 161.600 á hótelum) og um 58.500 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.). Í samanburði við janúar 2020 fækkaði gistinóttum í janúar um 42,3%. Þar af nemur fækkunin um 44,5% á hótelum, 53,8% á gistiheimilum og 28,2% á öðrum tegundum gististaða.

Gistinætur á hótelum í janúar voru 161.600 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum. Mest var hlutfallsleg aukning á höfuðborgarsvæðinu. Gistinætur Íslendinga voru 36.500, eða 22,6% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 125.100 (77,4%).

Á tólf mánaða tímabili, frá febrúar 2021 til janúar 2022, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 2.590.400 sem er 111% aukning frá sama tímabili árið áður. Aukning var í öllum landshlutum á þessu tímabili.

Framboð hótelherbergja í janúar jókst um 69% frá janúar 2021. Herbergjanýting á hótelum var 28,5% og jókst um 19 prósentustig frá fyrra ári.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands fór aftur af stað í júní 2021 eftir nokkurt hlé. Í undirbúningi er að endurmeta aðferðafræði við áætlun gistinátta utan hefðbundins gistináttamarkaðar og er ráðgert að taka upp áætlun á fjölda gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður að nýju þegar endurmati er lokið.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2022 og 2021 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir janúar 2022. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?