• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Erfitt að eiga peninga á Íslandi

Hvernig gefa á ríku fólki meiri peninga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. apríl 2022
in Ferðaþjónusta, Innlent
A A
0
Drífa Snædal skrifar
Einu sinni var sagt að það væri erfitt að eiga peninga á Íslandi. Tilefni ummælanna var að upp komst að þáverandi forsætisráðherra átti sér eitt aflandsfélag til að geyma auð sinn, einhvers staðar verða aurarnir jú að vera. Fleiri eru í þessum vandræðum með peningana sína, koma þeim fyrir í skíðakofum sem kosta milljarða, nýta þá til að arðræna fátækar þjóðir, geyma þá í pósthólfum með fyrirtækjanöfnum á eyjum í karabíska hafinu eða kaupa sér banka.

Þrátt fyrir þessa erfiðleika sem fylgja því að eiga peninga (nokkuð sem flest vinnnadi fólk á erfitt með að skilja að fullu) þá skal aldrei vanmeta hugmyndaauðgina við að gefa þeim sem eiga pening meiri peninga. Lykillinn að því er að komast til pólitískra valda, eiga pólitíska fulltrúa sem geta tekið ákvarðanir fyrir ríki og sveitarfélög og gera sem flesta í stjórnmálum samseka með gjörningum.

Þegar komist er til valda þá er mikilvægt að vinna grunnvinnuna. Ef ætlunin er til dæmis að gefa ríku fólki meiri peninga í gegnum einkavæðingu á velferðarkerfinu er mikilvægt að fjársvelta það kerfi í nokkur ár fyrst þannig að fólk sem reiðir sig á kerfið kalli sjálft eftir breytingum sem gætu hugsanlega orðið til að bæta kerfið og auka þar með lífsgæði. Breytingar fela síðan í sér að velviljaður kapítalisti býðst til að reka sjoppuna fyrir miklu minni pening en bara á miklu betri hátt, með skilvirknina í fyrirrúmi. Fórnarkostnaðinn ber starfsfólk í gegnum kjararýrnum, skattgreiðendur þar sem kostnaðurinn við milliliðina fer alltaf á endanum upp úr öllu valdi og að lokum notendur þjónustunnar sem þurfa að sætta sig við lakari þjónustu og meiri gjaldtöku.

Ef ætlunin er að gefa ríku fólki meiri peninga í gegnum sölu á bönkum eða öðrum arðbærum einingum þarf að byrja á því að koma þeirri hugmynd í kollinn á sem flestum að það sé óheppilegt að almenningur eigi fjármálastofnanir. Næsta skref er svo að bjóða öllum sem geta að kaupa eitthvert smotterí í bankanum og tryggja að þau kaup skili sér í gróða strax næsta dag. Þessi millileikur að gefa almenningi kost á að kaupa hlutabréf er auðvitað sýndarmennska því þessi hlutabréf rata fyrr eða síðar í „réttar hendur“.

Þetta þekkjum við mjög vel á undanförnum áratugum. Það þarf því engan að reka í rogastans við að sjá listann yfir kaupendur í Íslandsbanka. Þetta er fólkið sem á að eiga banka á Íslandi, hér eftir alveg eins og áður. Þetta er hluti af því að gera ríkt fólk ríkara. Því þótt það sé „erfitt að eiga peninga á Íslandi“ er hópur fólks sem er alltaf til í að leggja það á sig.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?