Miðflokkurinn í Reykjavík kynnir helstu stefnumál sín í dag
Blaðamannafundur: Miðflokkurinn í Reykjavík kynnir helstu stefnumál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar þann 26. maí næstkomandi.
Miðflokkurinn í Reykjavík boðar til blaðamannafundar í dag, kl 14:00 að Suðurlandsbraut 18, til þess að kynna helstu stefnumál sín fyrir komandi borgarstjórnar-kosningar.
Vigdís Hauksdóttir oddviti flokksins í Reykjavík mun fara yfir helstu stefnumálin, ásamt þeim Baldri Borgþórssyni sem skipar 2. sæti listans og Sveini Hirti Guðfinnssyni sem skipar 3. sæti listans.
Að fundinum loknum mun gefast tækifæri til viðtala og spyrja spurninga.
Hér er hægt að sjá Facebook síðu Miðflokksins
Umræða