• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Áslaug Thelma lagði OR – ,,Tímamótaaðför vinnuveitanda á hendur starfsmanni“

,,Ég var opinberlega smánuð á blaðamannafundi sem vinnuveitandinn boðaði til"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. júní 2022
in Fólk, Fréttir, Innlent
A A
0

Árið 2018 var Áslaugu Thelmu Einarsdóttur sagt upp starfi sem millistjórnanda hjá OR og hefur uppsögnin nú verið dæmd ólögleg. Dómur Landsréttar hefur ekki verið birtur ennþá en Áslaug Thelma hefur hann undir höndum og greinir frá honum á Facebook:

,,Í dag var kveðinn upp dómur í Landsrétti í máli sem ég höfðaði á hendur fyrrverandi vinnuveitanda mínum, Orkuveitu Reykjavíkur.

Forsaga málsins er sú að mér var fyrirvaralaust sagt upp störfum í september 2018 eftir að ég hafði ítrekað kvartað undan framkomu framkvæmdastjórans sem var minn næsti yfirmaður. Það var hann sem sagði mér upp og vildi helst fylgja mér beint út úr húsi.

Í kjölfarið leitaði ég til stjórnarformanns fyrirtækisins þar sem ég gerði honum grein fyrir ítrekuðum kvörtunum mínum. Daginn eftir okkar fund, þremur dögum eftir mína uppsögn,var framkvæmdastjórinn rekinn. Sú uppsögn var sögð vera vegna framkomu hans við samstarfsfólk en þó var það látið fylgja að mitt mál og hans uppsögn tengdust ekki.

Það sem á eftir fylgdi var ótrúleg framganga vinnuveitandans, Orkuveitu Reykjavíkur, í minn garð með stuðningi eða í það minnsta þegjandi samþykki ráðandi afla í eigendahópi fyrirtækisins.

Ég var opinberlega smánuð á blaðamannafundi sem vinnuveitandinn boðaði til. Jafnframt vorum við hjónin sökuð um tilraunir til fjárkúgunar í öllum fréttamiðlum landsins (Ekki í Fréttatímanum, innsk. blaðamanns) fyrir það eitt að reyna að leita eftir réttlátri málsmeðferð. Hér er um að ræða tímamótaaðför vinnuveitanda á hendur starfsmanni sem vonandi hefur hvorki sést fyrr né síðar.

Í eftirá skýringum og málsvörn sinni hefur vinnuveitandinn borið því við að hafa ætlað að segja mér upp fyrst í maí árið 2018. Hvílík tilviljun að það var einmitt í maí 2018 sem sami vinnuveitandi hækkaði launin mín! Þetta er aðeins ein af fjölmörgum þversögnum í eftirá skýringum vinnuveitandans sem þola illa að vera bornar upp að ljósinu.

Nú hefur fallið dómur mér í vil í þessu máli eftir næstum fjögurra ára baráttu. Ég vildi óska þess að þessum tíma ævi minnar hefði verið varið í eitthvað uppbyggilegra. En ég er þakklát fyrir að þessu máli er nú lokið og ég þakka öllum þeim sem sýndu mér vinarþel og stuðning í baráttunni fyrir réttlæti.“

 

Umræða
Share3Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?