,,Ég rek mig á að margir eiga erfitt með að átta sig á þeirri staðreynd að Ísland er ekki lýðræðisríki nema að nafninu til. Dró því upp einfalda mynd til glöggvunar. Flestir finna vitaskuld fyrir merkjunum og verkjunum, en reyndin er sú að stjórnskipanin einkennist af auðræði eða ólígarkisma.
Lýðræðið er blekking eða Pótemkin-tjöld sem ætlað er að fela þessa mynd. Það gengur illa.“ Segir Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks á vef sínum og fjölmargar athugasemdir koma undir greinina og m.a. þessar tvær:
,,Dönsk vinkona spurði mig í morgun hvernig gengi með framgang nýju stjórnarskrárinnar og eg útskýrði fyrir henni að sérhagsmunaöfl með fúlgur fjár stæðu alltaf í veginum fyrir því að lýðræðislegur vilji kjósenda næði fram að ganga. Það bendir sterklega til þess að lýðræðið sé hvorki virt né virkt á Íslandi.“
,,Ég sótti síðastliðinn vetur og hálfan þar áður námskeið í nútímasögu við H.Í., aðallega Íslandssögu. Kennarar mínir þar skilgreindu íslenska stjórnskipulagið sem „ráðherraræði“. Sem rímar ágætlega við greiningu Kristins, framkvæmdavaldið er sterkt, en löggjafarvaldið veikt.“