• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Úttekt um bætta stjórnsýslu MAR skilað til matvælaráðherra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. ágúst 2022
in Óflokkað
A A
0
Að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, hefur verið gerð úttekt á almennri lagaumgjörð, stjórnsýslu og starfsháttum matvælaráðuneytisins. Úttektin var unnin af Ásgerði Snævarr, lögfræðingi í forsætisráðuneytinu, sem var í vistaskiptum í matvælaráðuneytinu á meðan á úttektinni stóð. Úttektinni hefur verið skilað til matvælaráðherra en tilgangur hennar er að treysta faglegan grundvöll stjórnsýslu matvælaráðuneytisins.

Matvælaráðuneytið tók til starfa í núverandi mynd 1. febrúar síðastliðinn. Ráðuneytið byggir á þeim verkefnum sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sinnti áður auk málefna landgræðslu og skógræktar.

Ráðuneytið setur mikinn fjölda reglugerða á ári hverju og úthlutar takmörkuðum gæðum í sjávarútvegi, fiskeldi og landbúnaði Það úrskurðar jafnframt í málum á æðra stjórnsýslustigi. Komið hefur fyrir að reglugerðir, ákvarðanir og úrskurðir ráðuneytisins í einstökum málum hafi leitt til málaferla og sætt gagnrýni af hálfu umboðsmanns Alþingis. Við þeim annmörkum og ábendingum hefur verið brugðist jafnóðum. Eftir sem áður leggur ráðuneytið áherslu á að leitast sé við að fyrirbyggja ágreiningsmál þannig að ákvarðanir og aðgerðir ráðuneytisins séu traustar og standist skoðun.

Í úttektinni eru um 20 ábendingar sem varða lagaumgjörð og stjórnsýslu ráðuneytisins. Þar á meðal er lagt til að kanna hvort tilefni sé til að koma á fót undirstofnun eða ráðuneytisstofnun sem verði falin dagleg umsýsla landbúnaðarmála. Einnig að lagt verði mat á hvort elstu lagabálkar á málefnasviði ráðuneytisins uppfylli þær kröfur sem í dag megi leiða af stjórnarskrá og þjóðréttarlegum skuldbindingum og að mótað verði verklag um skipulegt frumkvæðiseftirlit ráðuneytisins með framkvæmd stjórnarmálefna á málefnasviði þess.

Úrbótum á lagaumgjörð og stjórnsýslu ráðuneytisins verður komið í framkvæmd með ferns konar hætti. Í fyrsta lagi með breytingum á þeirri löggjöf sem heyrir undir málefnasvið ráðuneytisins. Í öðru lagi með breytingum á þeim almennu stjórnvaldsfyrirmælum sem ráðuneytið setur og með setningu nýrra stjórnvaldsfyrirmæla. Í þriðja lagi með breytingum og setningu verklagsreglna og verkferla. Loks verður úrbótum á stjórnsýslu ráðuneytisins hrint í framkvæmd með aðgerðum sem lúta að mannauði ráðuneytisins.

Úttektina má finna hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?