• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 29. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vann dómsmál og bætti kjör tuga þúsunda kvenna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. september 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fyrstu áhrifin voru þau að um 55 þúsund félagar konunnar í sömu starfsstétt fengu sömu launaleiðréttingu. Konan starfaði við umönnun, í starfi þar sem konur eru í miklum meirihluta. Eftir að dómur féll konunni í hag hafði hann keðjuverkandi áhrif á samfélagið

Jafnréttislöggjöfin á Nýja-Sjálandi hefur tekið umtalsverðum breytingum á undanförnum árum í kjölfar þess að kona sem starfaði á hjúkrunarheimili vann dómsmál þar sem hún krafðist þess að virði starfs hennar væri metið sambærilegt virði starfs fangavarða. Fjallað var um málið á vef bsrb.

Konan starfaði við umönnun, í starfi þar sem konur eru í miklum meirihluta. Kjör hennar voru talsvert verri en kjör fangavarða, stétt þar sem karlar eru í meirihluta. Eftir að dómur féll konunni í hag hafði hann keðjuverkandi áhrif á samfélagið, eins og rakið er í skýrslunni Verðmætamat kvennastarfa – Tillögur starfshóps forsætisráðherra um endurmat á virði kvennastarfa.

Fyrstu áhrifin voru þau að um 55 þúsund félagar konunnar í sömu starfsstétt fengu sömu launaleiðréttingu. Kostnaðurinn vegna þessa nam jafnvirði um 180 milljarða króna. En það var bara upphafið að viðamiklum breytingum í átt að auknu jafnrétti kynjanna. Í kjölfar dómsins skipaði forsætisráðherra Nýja-Sjálands starfshóp um launajafnrétti sem átti að auka samvinnu stjórnvalda við stéttarfélög og atvinnurekendur um viðbrögð við sambærilegum kröfum kvennastétta um launaleiðréttingu. Hópurinn gerði tillögur og leiðbeiningar til að styðja við framfylgd jafnréttislaga og lagði áherslu á hlutverk hins opinbera sem atvinnurekanda þegar kom að jafnréttismálum.

Tillögur starfshópsins urðu grundvöllur lagabreytinga árið 2020. Þær breytingar voru annars vegar þær að innleiða ferli sem auðveldaði úrlausn ágreiningsmála tengdum jafnlaunakröfum en hins vegar að tryggja að ágreiningi sem ekki væri hægt að leysa úr yrði skotið til úrskurðarnefnda eða dómstóla. Markmiðið með breytingunum er að útrýma kynbundnum launamun með því að tryggja að gripið yrði til aðgerða þegar þess gerðist þörf.

Dómsmál konunnar sem starfaði á hjúkrunarheimilinu varð því að þúfunni sem velti þungu hlassi í jafnréttismálum í Nýja-Sjálandi. Nú geta konur lagt fram jafnlaunakröfu gagnvart sínum atvinnurekanda, sé starf þeirra að meirihluta sinnt af konum eða hafi það verið vanmetið í sögulegu ljósi. Málin eru sett í faglegan farveg með skýra ferla og markmið.

Nánar er fjallað um málið í skýrslunni Verðmætamat kvennastarfa – Tillögur starfshóps forsætisráðherra um endurmat á virði kvennastarfa.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stakk þrjá með hnífi í borginni

    Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • ,,Pabbi þinn er vondur og hættulegur“ – ,,Èg elska þig pabbi“

    103 deilingar
    Share 41 Tweet 26
  • Svar héraðssaksóknara til dómsmálaráðuneytisins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Slagsmál, innbrot, eldur í íbúð og fleira

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?